Hoppa yfir valmynd

14 Ferðaþjónusta

Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Skilgreining málefnasviðs

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð menningar- og viðskiptaráðherra. Einn málaflokkur heyrir undir málefnasviðið sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.

Fjárhagsleg þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024

Útgjaldarammi - heildaryfirlit og breytingar eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum, sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breytingar á ramma milli áranna 2023 og 2024 

Heildargjöld málefnasviðs 14 Ferðaþjónusta árið 2024 eru áætluð 2.147,8 m.kr. og lækka um 268,8 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2023, eða sem svarar til 11,3%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 39,9 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 9,6%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Gjöld ríkissjóðs.

Útgjaldarammi - hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2022 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2022 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu

14.10 Ferðaþjónusta

Starfsemi málaflokksins er í höndum menningar- og viðskiptaráðuneytisins, Ferðamála­stofu og Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármála­áætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endur­spegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Aukin verðmætasköpun

Mótun og innleiðing aðgerðaáætlunar um uppbyggingu og þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

Innan ramma

Unnið verður að jafnari dreifingu ferðamanna um landið.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

Innan ramma

Meðalútgjöld á hvern erlendan ferðamann aukist.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

Innan ramma

Markmið 2: Jákvæð upplifun heimamanna og ferðamanna

Sýnileiki íslenskunnar stóraukinn.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

Innan ramma

Kannanir á ánægju heimamanna framkvæmdar og fylgst með áhrifum á nærsamfélag.

Ferðamálastofa

Innan ramma

Kannanir á ánægju ferðamanna framkvæmdar til að fylgjast með hvort upplifun þeirra sé betri eða í samræmi við væntingar.

Ferðamálastofa

Innan ramma

Stuðningur við uppbyggingu áfangastaða á landsbyggðinni, m.a. í gegnum Framkvæmdasjóð ferðamannastaða og Flugþróunarsjóð.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti og Ferðamálastofa

Innan ramma

Stuðningur við starfsemi áfangastaðastofa.

Ferðamálastofa

Innan ramma

Markmið 3: Umhverfisleg sjálfbærni í ferðaþjónustu

Áfangastaðir í opinberri umsjón með virka álagsstýringu.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

Innan ramma

Þróun og hagnýting Jafnvægisáss ferðamála.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

Innan ramma

     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 2.147,8 m.kr. og lækkar um 268,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 39,9 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild hækkar um 13 m.kr. vegna almenns útgjaldasvigrúms málaflokksins.
  2. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 22 m.kr. þar sem gert er ráð fyrir að tímabundin millifærsla gangi til baka.
  3. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 200 m.kr. þar sem gert er ráð fyrir að tímabundið framlag til að koma á fót fyrirmyndaráfangastöðum falli niður frá og með 2024. Framhald verkefnisins verður endurskoðað í aðgerðaáætlun í ferðaþjónustu sem er í vinnslu.
  4. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 31 m.kr. þar sem tímabundin framlög fjárlaganefndar í ýmis verkefni tengd ferðaþjónustu falla niður.
  5. Aðhaldskrafa málaflokksins nemur 72,8 m.kr. sem er skipt hlutfallslega niður á stofnanir og verkefni málaflokksins.
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum