Hoppa yfir valmynd
22. apríl 2024 Utanríkisráðuneytið

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna forsetakosninga 1. júní 2024

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna forsetakosninga 1. júní 2024 - myndHaraldur Jónasson / Hari

Kosning utan kjörfundar erlendis vegna forsetakosninga 1. júní 2024 hefst 2. maí og fer fram skv. ákvæðum 70. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 112/2021.

Kjörstaðir eru allar sendiskrifstofur Íslands (nema Fastanefnd hjá NATO í Brussel), aðalræðisskrifstofur í Winnipeg, Þórshöfn og Nuuk og hjá kjörræðismönnum.

Kjósendum er ráðlagt að hafa samband við sendiskrifstofur og kjörræðismenn og bóka tíma eftir samkomulagi til að kjósa. Á vef utanríkisráðuneytisins má finna upplýsingar um sendiskrifstofur Íslands og kjörræðismenn eftir löndum

Allir íslenskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili erlendis skemur en 16 ár (talið frá 1. desember árið áður en kosningar eru haldnar) eru sjálfkrafa með kosningarétt á Íslandi. Þeir þurfa að vera orðnir 18 ára á kjördag og hafa einhvern tíma átt lögheimili á Íslandi.

Þeir Íslendingar sem hafa búið erlendis lengur en frá 1. desember 2007 og ekki eru á kjörskrá þurfa að sækja sérstaklega um að þeir verði teknir á kjörskrá. Umsókn þarf að hafa borist Þjóðskrá í síðasta lagi 1. desember 2023. Eyðublað vegna þessa má nálgast á vef Þjóðskrár.

Á Ísland.is er birt upplýsingaefni bæði á íslensku og ensku.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum