Fréttir og greinar

Skýrsla McKinsey til nánari umfjöllunar á vegum stjórnvalda - 5.11.2012

Ný skýrsla alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækisins McKinsey & Company um Ísland og vaxtarmöguleika í framtíðinni er fagnaðarefni og þarft innlegg í umræðuna um framtíðarmöguleika Íslands. Forsætisráðuneytið hefur nú þegar hafið vinnu við að rýna í skýrsluna og verður fjallað nánar um hana á vegum stjórnvalda á næstunni.

Lesa meira

Til fyrirmyndar í jafnréttismálum - 25.10.2012

Alþjóða efnahagsráðið (World Economic Forum) hefur fjórða árið í röð skipað Íslandi í efsta sætið á lista ráðsins yfir stöðu jafnréttismála í heiminum. Norðurlöndin eru sem fyrr í efstu sætunum meðal 132 þjóða sem athugun WEF tekur til. Á kvarðanum 0 til 1 hefur Ísland nú 0,86 stig og er því ekki ýkja fjarri fullkomnum kynjajöfnuði. Stefnt er að því að jafnréttisvísitalan fyrir Ísland verði 0,9 árið 2020.

Lesa meira

„Úr kreppu í vöxt“ - 19.10.2012

Viðsnúningur hefur orðið á vinnumarkaði að mati sérfræðinga við Háskólann í Reykjavík sem kynntu í vikunni niðurstöður rannsóknar á mannauði og horfum á nýráðningum hjá fyrirtækjum í landinu. Niðurstöðurnar voru kynntar á fundi í HR undir fyrirsögninni Úr kreppu í vöxt – viðsnúningur á vinnumarkaði, en rannsóknin var gerð af Katrínu Ólafsdóttur og Arneyju Einarsdóttur.

Lesa meira

Endurreisn bankanna: 414 milljarðar króna - 17.10.2012

Seðlabanki Íslands

„Um 414 milljarðar af þeirri upphæð geta talist til beins kostnaðar af endurreisn fjármálakerfisins. Þar af runnu tæplega 213 til fjármálastofnana, bróðurparturinn, eða 170 milljarðar, til Seðlabankans vegna slæmrar stöðu hans og næstmest þurfti að leggja til Íbúðalánasjóðs eða tæpa 32 milljarða,“ sagði Katrín Júlíusdóttir í sérstakri umræðu á Alþingi um skýrslu Ríkisendurskoðunar um fyrirgreiðslu ríkisins við banka og stofnanir í kjölfar bankahrunsins.

Lesa meira

Staða heimilanna batnar - 10.10.2012

Ráðstöfunartekjur heimila hækkuðu árið 2011 um 9,6% frá fyrra ári. Ráðstöfunartekjur á mann jukust um 9,3% milli ára og kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann um 5,1%. Þetta kemur fram í nýjum útreikningum Hagstofu Íslands. Ráðstöfunartekjur heimila eru skilgreindar sem samtala launatekna og eignatekna. Undir þetta heyra einnig svokallaðar tilfærslutekjur en það eru greiðslur frá opinbera velferðarkerfinu svo sem barnabætur, vaxtabætur, atvinnuleysisbætur og fæðingarorlofsgreiðslur.

Lesa meira

Auknar vaxtabætur – aðgerð sem hreif þegar á reyndi - 3.10.2012

Niðurgreiðsla vaxtakostnaðar

„ Þessi niðurgreiðsla á vaxtakostnaði heimilanna var verulega aukin eftir hrun og náði hámarki í um 31% árið 2010, en lækkaði svo lítillega í 27,5% árið 2011 vegna lægri skulda og hækkunar ráðstöfunartekna á því ári,“ segir í skýrslu Þjóðmálastofnunar H.Í.

Lesa meira

Sleppum betur en aðrir við atvinnuleysi - 27.9.2012

atvinnuleysi-i-kreppurikjum

Ný skýrsla Þjóðmálastofnunar Háskóla Íslands, sem unnin var fyrir velferðarráðuneytið, er mikill fengur. Þetta er síðari skýrsla dr. Stefáns Ólafssonar og annarra starfsmanna stofnunarinnar um umfang kreppunnar og efnahagsleg áhrif hennar á heimilin.

Lesa meira

Hagkerfið komið úr klakaböndum - 26.9.2012

Atvinnuleysi, samanburður á millil landa

„Sá bati sem hófst í íslensku efnahagslífi árið 2010 hefur haldið áfram í ár þrátt fyrir erfiðleika í mörgum nálægum ríkjum og ýmis kerfislæg vandamál sem íslenska hagkerfið glímir enn við eftir hrunið 2008. Hefur hagvöxturinn, sem við áætlum að verði 3,2% í ár, verið á breiðum grundvelli og nægur til að draga úr slakanum í hagkerfinu." segir meðal annars í þjóðhagsspá Íslandsbanka. 

Lesa meira

Kjarasamningar – loforð og efndir ríkisstjórnarinnar - 21.9.2012

yfirlit

Að undanförnu hafa forystumenn samtaka atvinnurekenda og launamanna sem og þingmenn stjórnarandstöðunnar sakað ríkisstjórnina um að svíkja gefin loforð í tengslum við gildandi kjarasamninga. Meðfylgjandi er tafla um loforð og efndir ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga.

Lesa meira

Sýnilegur árangur á vinnumarkaði - 20.9.2012

 „Aukið veiðigjald, sem sjálfstæðismenn börðust  á móti fyrr á þessu ári, gerir okkur mögulegt að nærfellt tvöfalda framlög til rannsókna og tækniþróunar auk þess að skila 400 milljónum í sóknaráætlanir landshluta sem verður veruleg lyftistöng fyrir landsbyggðina ásamt samgöngubótum sem fjármagnaðar verða af veiðileyfagjaldi og flýta bæði Norðfjarðar- og Dýrafjarðargöngum um 2-3 ár." sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra í umræðum á Alþingi.

Lesa meira

Batnandi forsendur til að greiða niður skuldir - 18.9.2012

Skatttekjur sem hlutfall af VLF lækka lítillega milli ára

Fjárlagafrumvarpið  fyrir næsta ár ber þess vott ríkisstjórninni hefur á kjörtímabilinu tekist að koma ríkisrekstrinum á réttan kjöl. Hallinn á fjárlögum 2008 var um 14% af landframleiðslu en verður nánast enginn á næsta ári eða 0,1%. Engin ríkisstjórn í hinum vestræna heimi hefur náð slíkum árangri á undanförnum árum.

Lesa meira

Stefnuræða forsætisráðherra – Ágrip - 12.9.2012

Gluggar á Alþingishúsinu

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði m.a. í stefnuræðu sinni að skuldavandi heimilanna hefði náð hámarki árið 2009. Í skýrslu, sem kemur út á næstunni, komi fram að megnið af greiðsluvanda heimilanna vegna skulda hafi verið kominn til fyrir hrun bankanna eða meira en 2/3 hlutar vandans. „Samkvæmt skýrslunni hafa skuldir heimilana verið lækkaðar um 15-20% og veruleg hækkun vaxtabóta hefur létt skuldabyrðar heimilanna umtalsvert.

Lesa meira

Ríkissjóður siglir örugga leið úr kreppunni - 11.9.2012

utgjold

„Meginatriðið er að við lokum fjárlagagatinu með auknum tekjum af auðlindum í almannaeign og stöðugum hagvexti,“ segir Oddný G. Harðardóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, um frumvarp til fjárlaga 2013 sem hún lagi fram er þing kom saman 11. september.

Lesa meira

Efnahagsbatinn æ skýrari - 22.8.2012

Til þess er tekið af Seðlabankanum að atvinnuleysi hafi minnkað hraðar en ætlað var og horfur betri. Reiknar bankinn með að árið 2014 verði atvinnuleysið 4,4 prósent eða hálfu prósentustigi minna það árið en gert var ráð fyrir í maí síðastliðnum.
Efnahagsbatinn endurspeglast í væntingum fólks. Væntingavísitala Capacent Gallup hefur hækkað fjóra mánuði í röð og mælist nú 84,4 stig og hefur ekki verið hærri síðan í maí 2008. Lesa meira

Gengislánin rædd á ríkisstjórnarfundi - 21.8.2012

Eftir að hafa metið gögn málsins telja sérfræðingar stjórnvalda nærtækasta kostinn í stöðunni að fá niðurstöðu dómstóla eins fljótt og kostur er og fá þannig heildarniðurstöðu í málinu þannig að hægt sé að ljúka endurútreikningi gengistryggðra lána.

Lesa meira

Innheimta gengislána rædd á fundi ráðherranefndar - 20.8.2012

Á fundi ráðherranefndar um efnahagsmál í dag, 20. ágúst, var meðal annars fjallað um álitamál sem til umræðu hafa verið í fjölmiðlum um innheimtu banka og annarra lánastofnana á gengislánum sem dæmd hafa verið ólögmæt. Fundinn sátu Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, Oddný G, Harðardóttir, fjármálaráðherra og Ögmundur Jónasson, starfandi efnahags- og viðskiptaráðherra, auk aðstoðar- og embættismanna. Nefndin kallaði til fundar við sig lögfræðingana Lúðvík Bergvinsson og Sigurvin Ólafsson sem birtu í síðustu viku greinargerð þar sem spurt er hvort ólögmæt lán geti verið í vanskilum.

Lesa meira

15 milljarða króna vaxtabætur árið 2012 - 25.7.2012

„Tæplega 18.000 fjölskyldur fá greiddar vaxtabætur sem nema yfir 30.000 krónum á mánuði og yfir 6.000 fjölskyldur fá útborgaðar bætur sem jafngilda yfir 50.000 krónum á mánuði. Þannig hefur verið unnið vel úr áfallinu með því að beina aðgerðum að þeim sem mest hafa þurft á þeim að halda,“ segir Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra...

Lesa meira

Atvinnuástandið: „Komin langleiðina,“ segir forsætisráðherra - 13.7.2012

Atvinnuleysi júní 2012

„Við erum komin langleiðina með að ná þeim markmiðum sem sett voru í stöðugleikasáttmálanum 2009 bæði að því er varðar atvinnuleysi og fjárfestingar,“ Segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra um nýbirt gögn Vinnumálastofnunar sem sýna 4,8% atvinnuleysi í júní síðastliðnum. - Mjög dregur úr útgjöldum Atvinnuleysistryggingasjóðs með minnkandi atvinnuleysi.

Lesa meira

Hagvöxtur meiri en áætlað var fyrir þremur mánuðum - 5.7.2012

Fjárfesting sem hlutfall af landsframleiðslu 1997–2014

Landsframleiðsla eykst um 2,8% á þessu ári samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Hagstofunnar. Þetta er nokkur hækkun frá sambærilegri spá í lok mars síðastliðnum, en þá spáði Hagstofan 2,6% vexti á árinu. Hækkunin nær einnig til næsta árs og spáir Hagstofan 2,7% hagvexti í stað 2,5% eins og hún gerði í mars síðastliðnum.

Lesa meira

Sjálfbær þróun og grænt hagkerfi í sviðsljósinu í Ríó - 20.6.2012

Ráðstefna  Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun

Á ráðstefnunni í Ríó býðst aðildarlöndum að gangast undir valfrjálsar skuldbindingar. Í því sambandi er ætlunin að vekja athygli á skýrslu nefndar Alþingis um eflingu græna hagkerfisins á Íslandi og þingsályktunartillögu um sama efni. Samkvæmt fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar, sem kynnt var fyrir einum mánuði, er ætlunin að leggja einn milljarð króna í grænan fjárfestingarsjóð þegar á næsta ári.

Lesa meira

Yfirlýsing formanna ríkisstjórnarflokkanna í tilefni af þinglokum - 19.6.2012

Með þessari niðurstöðu hafa forsendur fjárlaga, langtímaáætlunar í fjármálum ríkissjóðs og sá hluti fjárfestingaáætlunar ríkisstjórnarinnar árin 2013-2015, þar sem horft var til tekna af sérstöku veiðigjaldi, verið tryggðar. 

Lögfesting veiðigjalda nú gerir stjórnvöldum því kleift að hefja kröftuga uppbyggingu í samræmi við fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar.

Lesa meira

Athugasemd frá forsætisráðherra vegna veiðigjalda - 19.6.2012

Að gefnu tilefni áréttar forsætisráðherra að það er rangt sem fram hefur komið í fjölmiðlum að fyrirhuguð lög um veiðigjöld muni aðeins gilda í eitt ár og að fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar sé í uppnámi. Lesa meira

Stöðugur efnahagsbati - 11.6.2012

Hagvöxtur í nokkrum löndum

Tölur Hagstofa Íslands  um landsframleiðslu á fyrsta ársfjórðungi 2012 staðfesta  að efnahagsbatinn er stöðugur og heldur áfram. Landsframleiðsla á föstu verðlagi jókst um 2,4% frá 4. ársfjórðungi 2011 til 1. fjórðungs 2012. Hagvöxtur hefur verið jákvæður á 5 síðustu ársfjórðungum eins  og meðfylgjandi mynd sýnir. Tölur Hagstofa Íslands um landsframleiðslu á fyrsta ársfjórðungi 2012 staðfesta að efnahagsbatinn er stöðugur og heldur áfram. Landsframleiðsla á föstu verðlagi jókst um 2,4% frá 4. ársfjórðungi 2011 til 1. fjórðungs 2012.

Lesa meira

Er tilefni til að binda skipin nú? - 5.6.2012

Framlegð sjávarútvegsins

„Það er auðvitað alltaf gott að við tölum saman. Og við eigum að meðhöndla þessi mál svona;  sem rökræðu og skoðanaskipti en ekki boxkeppni eða eitthvað sem ræðst í krafti og auðs og peninga- eða valdastöðu í þjóðfélaginu,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í upphafi máls síns á fundi sem forsvarsmenn Brims hf. boðuðu til í dag um frumvörp um veiðigjald og breytingar á stjórn fiskveiða.

Lesa meira

Samgönguáætlun: Jarðgöngum hraðað í samræmi við nýja fjárfestingaáætlun - 1.6.2012

Raunaukning í fjárfestingu hins opinbera

 „Hluta sérstaks veiðigjalds verður varið í fyrsta lagi til samgöngumála. Þar er um að ræða 2,5 milljarða króna árlegt viðbótarframlag til samgönguáætlunar/jarðgangaáætlunar til næstu 10 ára.“

Lesa meira

Helstu hagvísar benda í rétta átt - 30.5.2012

Gluggar á Alþingishúsinu

„Við höfum gengið í gegnum erfiða tíma en við erum hægt og bítandi og jafnt og þétt að sigrast á þeim og eftirleikurinn verður auðveldur borið saman við það sem að baki er.“

Lesa meira

Góðar horfur á Íslandi að mati OECD - 23.5.2012

Spá OECD um hagvöxt árið 2012

Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, er bjartsýn á horfur í efnahagslífinu hér á landi samkvæmt nýrri hagspá sem stofnunin gaf út í vikunni í tengslum við ársfund stofnunarinnar sem nú stendur yfir í París. Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra, situr fundinn fyrir Íslands hönd. OECD spáir því að hagvöxtur verði 3,1% á árinu sem er viðlíka mikill vöxtur og varð á síðasta ári.  Gert er ráð fyrir því að úr vextinum dragi á næsta ári og verði um 2,7%.

Lesa meira

Yfirlýsing forsætisráðherra vegna ummæla forseta Íslands - 13.5.2012

Vegna fyrirspurna frá fjölmiðlum í kjölfar viðtals við forseta Íslands, hr. Ólaf Ragnar Grímsson, vill forsætisráðherra taka fram eftirfarandi: Lesa meira

Atvinnuþátttaka meiri en í öðrum Evrópulöndum - 10.5.2012

Hlutfall fólks á vinnualdri sem er í launaðri vinnu

Meðfylgjandi mynd sýnir þann hluta fólks á vinnualdri sem er í launuðum störfum í 34 löndum Evrópu, en hún er fengin úr nýrri skýrslu Þjóðmálastofnunar Háskóla Íslands um áhrif fjármálahrunsins á lífskjör þjóðarinnar.

Lesa meira

Einfaldari og skilvirkari samskipti landshluta og ríkisins - 8.5.2012

Ríkisstjórnin við undirritun viljayfirlýsingar um Austurbrú

Stofnfundur Austurbrúar, sameinaðra stoðstofnana á Austurlandi, var haldinn á Reyðarfirði í dag.

Lesa meira

Á annan milljarð króna til framkvæmda og framsóknar á Austurlandi - 8.5.2012

Ríkisstjórn Íslands fundar með sveitarstjórnarfólki á Austurlandi

Ríkisstjórnin hélt reglulegan ríkisstjórnarfund sinn á Egilsstöðum í dag.

Lesa meira

Fundur ríkisstjórnarinnar haldinn á Egilsstöðum - 7.5.2012

Egilsstaðir

Reglubundinn fundur ríkisstjórnarinnar verður haldinn á Egilsstöðum þriðjudaginn 8. maí næstkomandi. Fundarstaður er Gistihúsið á Egilsstöðum og hefst fundurinn að venju klukkan 09:00. Þetta er fyrsti fundur ríkisstjórnarinnar á Austurlandi, en áður hefur hún haldið fundi utan höfuðborgarinnar, á Ísafirði, Akureyri og í Reykjanesbæ.

Lesa meira

Aukinn jöfnuður mildar áhrif kreppunnar - 3.5.2012

„Þróun í átt til ójafnrar tekjudreifingar á Íslandi árin 1995 til 2007 var fordæmalaus meðal landa sem njóta hagsældar og Íslendingar bera sig saman við.“ Þetta segir í nýrri skýrslu.

Lesa meira

Glíman við skuldir heimilanna - Rannsókn AGS - 12.4.2012

Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn - merki og línurit

 „Djörf og vel útfærð endurskipulagning skulda heimilanna, eins og beitt var í Bandaríkjunum á fjórða áratug síðustu aldar, og á Íslandi í dag, getur dregið verulega úr vanskilum heimila og nauðungarsölum. Með því móti er komið í veg fyrir vítahring sífellt lækkandi fasteignaverðs og minnkandi eftirspurnar,“ segir í skýrslunni.

Lesa meira

Athugasemdir vegna umfjöllunar um veiðigjöld og stjórn fiskveiða - 5.4.2012

Þorskur

Vegna umfjöllunar Deloitte og Íslandsbanka vill sjávarútvegsráðuneytið vekja athygli á eftirtöldum atriðum sem varða frumvörp um stjórn fiskveiða og veiðigjöld.

Lesa meira

Yfirveðsettum heimilum fækkar um nær helming - 4.4.2012

Í rannsókn Seðlabankans er leitast við að meta áhrif ýmissa aðgerða til að draga úr greiðsluvanda fólks. Niðurstaðan er mjög skýr: lítill árgangur næst með almennum aðgerðum. Rannsóknin sýnir að almenn skuldaniðurfærsla er dýr og kemur einungis að litlu leyti til móts við  þá sem eru í greiðsluvanda.

Lesa meira

Endurreisn fyrirtækja að mestu lokið um næstu áramót - 3.4.2012

Skip á siglingu

Aukin hreyfing komst á fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja í bankakerfinu á síðastliðnu ári, segir í nýrri skýrslu Samkeppniseftirlitsins, Endurreisn fyrirtækja 2012 – Aflaklær eða uppvakningar?
„Með sama áframhaldi má reikna með að þessum aðgerðum verði að mestu lokið um næstu áramót,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra.

Lesa meira

Mikilvæg stefnumál komin fram til afgreiðslu - 30.3.2012

Gluggar á Alþingishúsinu

Ríkisstjórnin hefur að undanförnu samþykkt og lagt fram nokkur mikilvæg stefnumál sín og stjórnarflokkanna. Þau eru ýmist í formi þingsályktunartillagna eða lagafrumvarpa og eru misjafnlega á veg komin í meðförum Alþingis. Þau snerta stjórn fiskveiða, enduskoðun stjórnarskrár, fækkun ráðuneyta og rammaáætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. 

Lesa meira

Hundruð milljarða króna fjárfestingar til ársins 2015 - 23.3.2012

Virkjun - Ljósmynd: Sigurður Ólafsson/norden.org

Líkur fara nú vaxandi á að markmið, sem aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld settu sér um auknar fjárfestingar í tengslum við kjarasamninga, náist á næstu misserum.

Lesa meira

Batamerki á vinnumarkaði - 21.3.2012

Nýbyggingar

Ný vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands sýnir að 1.100 færri  eru nú án atvinnu en í febrúar 2011. Atvinnuleysi mælist 7,3 prósent nú en var 7,9 prósent vinnuaflsins í febrúar 2011. 

Lesa meira

Allra tjón ef krónan veikist - 13.3.2012

5 krónur

„Frekari veiking krónunnar yrði til tjóns fyrir fyrir efnahagslífið í landinu, ekki síst  heimilin og neytendur,“ segir Steingrímur J. Sigfússon efnahags- og viðskitparáðherra.

Lesa meira

Skatttekjur ríkisins lækka sem hlutfall af landsframleiðslu - 9.3.2012

Tekjur ríkissjóðs hlutfall af VLF

Nýjar tölur Hagstofunnar um fjármál hins opinbera sýna greinilega hversu tekjur ríkisins sem hlutfall af landsframleiðslu hafa lækkað frá árunum fyrir hrun.

Lesa meira

Eftirtektarverður viðsnúningur - 8.3.2012

Landsframleiðsla og þjóðarútgjöld

„Útreikningar Hagstofunnar staðfesta þann undraverða viðsnúning sem hér varð á síðasta ári í efnahagslífi Íslands. Þjóðarkakan sem heimilin í landinu og hið opinbera hefur úr að spila stækkaði um 3,1 prósent. Það er rakið til aukinnar fjárfestingar en einnig aukinnar einkaneyslu. Þetta er ríflega 60 prósentum yfir meðalhagvexti OECD-ríkjanna á síðasta ári. Fáar þjóðir innan OECD státa af meiri hagvexti en Ísland,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, um nýjar þjóðhagstölur Hagstofunnar.

Lesa meira

Tilmæli FME vegna gengislánadómsins og frekari aðgerðir - 5.3.2012

Fjármálaeftirlitið

Með vísan til þeirrar stöðu sem upp er komin hefur Fjármálaeftirlitið beint tilmælum til bankanna um að stilla innheimtuaðgerðum í hóf meðal þeirra sem réttaróvissa ríkir um í kjölfar gengislánadóms Hæstaréttar 15. febrúar síðastliðinn. Tilmælin er að finna í heild sinni á vef Fjármálaeftirlitsins.

Lesa meira

Jafnandi áhrif fjármagnstekjuskatts - 2.3.2012

5 krónur

Skatttekjur ríkissjóðs af fjármagnstekjum hafa dregist verulega saman miðað við það sem var þegar söluhagnaður af hlutabréfum náði mestum hæðum fyrir bankahrunið haustið 2008. Almennt drógust fjármagnstekjur í landinu mjög saman eftir hrunið og tekjur ríkissjóðs af þeim minnkuðu að sama skapi.

Lesa meira

Aukið samráð um skuldavanda heimilanna - 1.3.2012

Nýbyggingar

Efnahags- og viðskiptaráðuneytið hyggst fá  tvo óháða lögfræðinga til þess að rýna í álit lögmannsstofunnar Lex um lögfræðileg álitaefni vegna dóms Hæstaréttar 15. febrúar síðastliðinn um gengislán. Sú álitsgerð var unnin að ósk Samtaka fjármálafyrirtækja.

Lesa meira

Félagsvísar: Mikilvægar upplýsingar um samfélagið - 28.2.2012

Stórhöfðaviti

Félagsvísar eru safn tölfræðilegra upplýsinga sem varpa ljósi á þjóðfélagsástandið á hverjum tíma og ólíkar aðstæður ýmissa þjóðfélagshópa. Velferðarráðuneytið birti í fyrsta sinn slíka félagsvísa á vef ráðuneytisins fyrir skemmstu.

Lesa meira

Skuldir færðar til en ekki færðar niður - 23.2.2012

„Því miður er það svo að allar tillögur um flatar niðurfærslur, færa ekki skuldir niður heldur færa þær til,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.

Lesa meira

Laun forsætisráðherra skert um 5,2 milljónir króna frá hruni - 17.2.2012

Fyrir viku sló Fréttatíminn upp launahækkunum forsætisráðherra og þingmanna. Tilefnið virtist vera ákvörðun kjararáðs snemma vetrar um að fella úr gildi þá launalækkun sem gilt hafði frá því þremur mánuðum eftir bankahrunið haustið 2008.

Lesa meira


Tungumál


Flýtival