Samstarfsyfirlýsing - framtíðarsýn og aðgerðir

Menntun að leiðarljósi

Menntun, vísindi og menning eru mikilvægir þættir í endurreisn Íslands. Skapandi og gagnrýnin hugsun og aukin áhersla á lýðræði og mannréttindi skipa mikilvægan sess í menntun þjóðarinnar. Hlutverk skólastarfs er meðal annars að virkja börn og ungmenni til virkrar þátttöku í samfélaginu. Leggja þarf áherslu á rannsóknarsjóði sem eru mikilvægir fyrir framþróun vísinda og tækni á Íslandi. Hlúa verður að menningarstarfsemi um allt land með áherslu á íslenska frumsköpun. Stór hluti af því að efla menntun, vísindi og menningu er að tryggja jafnrétti til náms og huga að velferð barna og ungs fólks.

  • Gjaldfrjáls grunnmenntun er lykill að félagslegu jafnrétti og velgengni þjóðarinnar til lengri tíma litið.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT

  • Hafin verði vinna við að innleiða tillögur um íslenska málstefnu.

    AFGREITT

  • Framfærslugrunnur LÍN verði endurskoðaður með það að markmiði að hækka hann í áföngum.

    AFGREITT

  • núverandi ábyrgðarmannakerfi afnumið strax á sumarþingi.

    AFGREITT

  • Endurmeta þarf skipulag og rekstur háskólanna. Mikilvægt er að sú vinna fari fram í samráði hins opinbera og háskólasamfélagsins.   (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ HLUTA

  • Staðinn verður vörður um samkeppnissjóði og áfram tryggt öflugt rannsóknastarf í landinu.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Leitast verður við að tryggja velferð og vellíðan barna og ungmenna í leik- og grunnskólum með öflugu samstarfi ríkis og sveitarfélaga og verður áfram staðið við hugmyndafræði skóla án aðgreiningar.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Námskrá fyrir öll skólastig verður endurmótuð meðal annars með það að markmiði að efla skapandi og gagnrýna hugsun í allri menntun og efla lýðræðisvitund.

    AFGREITT

  • Ríkisstjórnin mun vinna með hagsmunaaðilum að undirbúningi á viðurkenningu táknmálsins á kjörtímabilinu.

    AFGREITT

  • Mótuð verði menningarstefna til framtíðar í samráði við listamenn og aðra þá sem starfa að menningarmálum.

    Í VINNSLU

  • Tryggja þarf öfluga fullorðinsfræðslu, þ.m.t. íslenskukennslu fyrir útlendinga, og hvetja atvinnulausa til að sækja sér frekara nám við hæfi.   (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU



Senda grein


Tungumál


Flýtival