Samstarfsyfirlýsing - framtíðarsýn og aðgerðir
Varanleg velferð
Heilbrigt velferðarkerfi og baráttan gegn langtímaatvinnuleysi eru mikilvægar forsendur fyrir farsælli enduruppbyggingu samfélagsins. Mikilvægasta verkefni velferðarþjónustunnar og leiðarljós við forgangsröðun í núverandi aðstæðum er að vernda hag og stöðu barna og fjölskyldna þeirra, sem og þeirra sem lakast standa í samfélaginu. Ríkisstjórnin lítur á það sem forgangsmál að tryggja að afleiðingar efnahagssamdráttarins leiði ekki til þess að húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga sé ógnað. Velferðarmálin snúast um öfluga heilbrigðisþjónustu fyrir alla, sterkt almannatryggingakerfi og tryggt húsnæði.
-
Staðið verði við framvæmdaáætlun um ný hjúkrunarrými fyrir aldraða. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Innleidd verði að nýskipan húsnæðismála til að búa almenningi sambærilegt öryggi og valkosti í húsnæðismálum og hinum Norðurlöndunum. Markmiðið er að fólk í húsnæðisleit eigi valkosti með eignar-, leigu- og búseturéttaríbúðum, hvort sem það þarfnast húsnæðis í fyrsta sinn eða síðar á lífsleiðinni. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ HLUTA
-
Mismunandi búsetuformum verði gert jafnhátt undir höfði. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ HLUTA
-
Lokið verði við endurskoðun almannatryggingakerfisins, mað það að markmiði að gera það einfaldara og réttlátara og koma í veg fyrir víxlverkanir.
AFGREITT AÐ HLUTA
-
Litið verði til þeirra möguleika sem felast í heilsutengdri ferðaþjónustu með það að markmiði að nýta þá þekkingu og kraft sem býr í íslenska heilbrigðiskerfinu og styrkja um leið stoðir þess. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ HLUTA
-
Beitt verði félagslegum úrræðum til að hindra langvarandi alfeiðingar kreppunnar. Áhersla verði lögð á heilsueflingu sem forvörn gegn sjúkdómum og leið til að auka lífsgæði. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ HLUTA
-
Veitt verði heilbrigðisþjónusta við hæfi á viðeigandi þjónustustigi, óháð efnahag og búsetu. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Staðinn verður vörður um Íbúðalánasjóðs, sjálfseignarfélög og frjáls félagasamtök sem tryggja hagstætt húsnæði. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Stefnt verði að því að sameina stofnanir á sviði almannatrygginga og vinnumála í eina stofnun um vinnu og velferð.
Í VINNSLU
-
Aukin áhersla verður lögð á endurhæfingu lífeyrisþega til að tryggja virka þátttöku þeirra, meðal annars með því að innleiða samning Sameinuðuþjóðanna um réttindi fatlaðra. (Viðvarandi verkefni)
Í VINNSLU
-
Hugað að nýskipan örorku- og endurhæfingarmála þar sem litið verði til möguleika og getu en ekki eingöngu til sjúkdómsgreiningar og færniskerðingar.
Í VINNSLU
-
Heilsugæslan verði sett í öndvegi sem fyrsti viðkomustaðurinn í heilbrigðiskerfinu.
Í VINNSLU
-
Stefnt verði að því að fólk geti búið heima eins lengi og kostur og vilji er til, meðal annars með því að samþætta heimaþjónustu og heimahjúkrun. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Hlutverk sveitarfélaga í velferðarþjónustu við börn, fatlaða fólk, aldraða og fjölskyldur verði aukið með flutningi verkefna frá ríki til sveitarfélaga.
AFGREITT AÐ MESTU
-
Dregið úr vægi verðtryggingar í lánaviðskiptum samhliða auknu framboði óverðtryggðra íbúðalána. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ HLUTA
-
Félagslegum afleiðingum atvinnuleysis og fjárhagsvanda fólks verður mætt með markvissu samstarfi og samráði milli ríkis, sveitarfélaga, aðila vinnumarkaðarins og frjálsra félagasamtaka. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ HLUTA
-
Aðgerðaráætlun í málefnu barna- og ungmenna verði fylgt eftir. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
