Samstarfsyfirlýsing - framtíðarsýn og aðgerðir

Ríkisfjármál

Lykill að endurreisn íslensks efnahagslífs felst í víðtækum aðgerðum á sviði ríkisfjármála með það að markmiði að mæta hinu mikla tekjufalli sem ríkissjóður hefur orðið fyrir vegna efnahagshrunsins og þeim miklu skuldum sem það skilur eftir sig. Beita verður ríkisfjármálum til að verja grunnvelferðarkerfið og auka kjarajöfnuð um leið og staðið er undir fjárhagsskuldbindingum ríkissjóðs og stutt eftir megni við baráttuna við atvinnuleysi og nýja sókn í atvinnulífi um allt land.

  • Áætlun um jafnvægi í ríkisfjármálum verði kynnt opinberlega í sumarbyrjun og þá rædd m.a. við aðila vinnumarkaðarins.

    AFGREITT

  • Engin ríkislaun verði hærri en laun forsætisráðherra.   

    AFGREITT

  • Settar verða samræmdar reglur allra ráðuneyta um niðurskurð á ferða-, risnu- og bifreiðakostnaði.    

    AFGREITT

  • Efnt verði til víðtæks sparnaðarátaks í ríkiskerfinu öllu, með þátttöku starfsmanna, stjórnenda og notenda opinberrar þjónustu.    

    AFGREITT

  • Við ákvarðanir um útgjaldaramma til næstu fjögurra ára verði byggt á þeirri forgangsröðun og lögð áhersla á samstöðu um brýn velferðarverkefni, verndun starfa, kynjajafnrétti og áhrif á byggðirnar.

    AFGREITT

  • Byggt verði á bestu þekking við allar ákvarðanir á hverju fagsviði um sig og fagfólk og notendur kallað til samráðs í sparnaðaraðgerðum.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Áhættumat verði ávallt lagt til grundvallar ákvörðunum um niðurskurð og sameiningu stofnana og þess freistað að leggja mat á hættu á auknum kostnaði til lengri tíma litið.  (Viðvarandi verkefni) 

    AFGREITT AÐ HLUTA

  • Árangursmat verði styrkt í hinu opinbera kerfi til að auðvelda ákvarðanir um forgangsröðun.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ HLUTA

  • Sett verða ný markmið um opinber innkaup til að ná fram aukinni hagkvæmni og sparnaði.    

    AFGREITT AÐ HLUTA

  • Hömlur verði settar á aðkeypta ráðgjafaþjónustu.

    AFGREITT AÐ HLUTA

  • Eftirlit með framkvæmd fjárlaga verður styrkt í þeim tilgangi að koma í veg fyrir eyðslu umfram fjárheimildir.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Ekki verði beitt flötum niðurskurði en þess í stað teknar markvissar ákvarðanir um sparnað og hagræðingu.   (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Gætt verði ítrasta aðhalds í rekstri ríkisins.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Kannaðir verði kostir til aukinnar tekjuöflunar ríkissjóðs í samráði við hagsmunaaðila og með hliðsjón af reynslu þeirra landa sem glímt hafa við svipaða erfiðleika. Aukin tekjuöflun leggist á þá sem eru í stakk búnir að bera auknar byrðar.       

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Kynjuð hagstjórn verður höfð að leiðarljósi við fjárlagagerð og efnahagsstjórn.   (Viðvarandi verkefni) 

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Þóknanir fyrir nefndir verði lækkaðar eða lagðar af.   

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Unnið verði markvisst að því starfi sem hófst með samstarfi stjórnarflokkanna að koma í veg fyrir skattaundandrátt.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Sjálfstæðum hlutafélögum í eigu ríkisins verði settar skýrar reglur um launastefnu og útgjaldastefnu í þessum anda.     

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Markmið ríkisstjórnarinnar er að laga rekstur ríkisins að gjörbreyttum efnahagslegum raunveruleika. Fyrri ráðstafanir í átt til markaðs- og einkavæðingar opinberra verkefna og þjónustu verði endurskoðaðar ef það getur leitt til minni kostnaðar. Fara þarf yfir kostnað ríkissjóðs við  ýmsa samninga sem gerðir hafa verið, t.d. vegna húsnæðismála ríkisins, og þeir endurmetnir í ljósi aðstæðna.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Stefnt verði að því að útgjöld atvinnulífs og sveitarfélaga vegna eftirlits og ýmissa reglugerðaákvæða verði lækkuð. 

    Í VINNSLU

  • Sett verður á fót verkefnisstjórn í ríkisfjármálum, undir forystu ráðherranefndar, sem hafi að markmiði að samræma hagræðingaraðgerðir og skilgreina forgangsverkefni almannaþjónustunnar, í samráði við veitendur og fulltrúa notenda opinberrar þjónustu.     

    AFGREITT

  • Sett verði á fót sparnaðarteymi sem vinni með öllum ráðuneytum og undirstofnunum að hagræðingaraðgerðum, jafnt innan einstakra stofnana og með tilfærslu verkefna milli stofnana og þvert á ábyrgðarsvið ráðuneyta.   

    AFGREITT

  • Leggja þarf áherslu á að leysa fyrst vanda raunverulegra rekstrarfélaga til að draga úr skaða í efnahagsstarfsemi og lágmarka atvinnuleysi. Markmið ríkisstjórnarinnar er að aðgerðir gagnvart öllum smærri og meðalstórum fyrirtækjum liggi fyrir í síðasta lagi í septemberlok.

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Frumvarp um eignaumsýslufélag lagt fyrir Alþingi á vorþingi.   

    AFGREITT

  • Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir því að ríkisbankarnir móti samræmda áætlun um hvernig brugðist verði við skuldavanda fyrirtækja. Skuldameðferð fyrirtækja verði skjót, réttlát, gegnsæ og hagkvæm og í samræmi við alþjóðlega viðurkenndar reglur. Meginsjónarmið skal vera að að bankarnir sjái sjálfir um úrvinnslu mála.

    AFGREITT

  • Efnt verður til sérstaks kynningarátaks á þeim úrræðum sem heimilum í erfiðleikum standa til boða.

    AFGREITT

  • Ráðgjafarstofa heimilanna verði efld enn frekar ef þörf krefur til að eyða biðlistum eftir viðtölum og aðstoð við endurskipulagningu á fjárhag heimila og fólks í vanda.

    AFGREITT

  • Sérstaklega verði hugað að aðgengi íbúa á landsbyggðinni að þjónustu Ráðgjafarstöðvarinnar.

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Heildarmat á þörf fyrir frekari aðgerðir og tillögur í því efni verði unnar í kjölfar úttektar Seðlabanka Íslands á skuldum og tekjum heimila sem áætlað er að liggi fyrir í síðari hluta maímánaðar. Ákvarðanir um frekari aðgerðir og tillögur verði teknar í samráði við aðila vinnumarkaðarins.

    AFGREITT

  • Skuldastaða heimila, greiðslu- og framfærslugeta verði til stöðugs endurmats sem og nauðsynlegar aðgerðir til að koma til móts við heimili í vanda.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Þegar ákveðnum úrræðum þarf að fylgja fast eftir.

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Djúp niðursveifla í kjölfar bankahrunsins hefur skapað misgengi á milli greiðslubyrði og greiðslugetu margra heimila í landinu. Þetta misgengi verður að leiðrétta með lækkun á greiðslubyrði þeirra sem verst standa þar til verðmætasköpun atvinnulífsins tekur aftur að aukast.

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Markmið ríkisstjórnarinnar er að koma í veg fyrir að tímabundinn greiðsluvandi leiði til vanskila og gjaldþrots, svo sem með hækkuðum og breyttum vaxtabótum og húsaleigubótum. Lykilatriði er að tryggja húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga.

    AFGREITT AÐ MESTU

Senda grein


Tungumál


Flýtival