Samstarfsyfirlýsing - framtíðarsýn og aðgerðir

Efnahagsmál

Meginverkefni efnahagsmála eru að ná aftur jafnvægi í rekstri ríkissjóðs, endurreisa fjármálakerfið, ná þjóðarsátt um lykilmarkmið og viðamiklar efnahagsráðstafanir og sátt við nágrannalönd eftir hrun íslenska fjármálakerfisins. Þessi verkefni þarf að vinna til að koma efnahags- og atvinnulífi hið fyrsta upp úr núverandi öldudal, skapa þjóðhagslegan stöðugleika að nýju og endurheimta traust á landið í alþjóðasamfélaginu.

  • Setja þarf reglur sem takmarka útlán banka á uppgangstímum og skylda þá til að leggja fyrir þegar vel gengur.   

    AFGREITT

  • Herða þarf reglur um miklar lánveitingar til eins og sama aðila og um lán til tengdra aðila.      

    AFGREITT

  • Setja þarf afgerandi skorður við því að hér geti aftur þróast kaupaukakerfi í fjármálastofnunum sem leiðir til mikillar áhættusækni. 

    AFGREITT

  • Rýmka þarf heimildir FME og annarra eftirlitsstofnana til að skýra opinberlega frá athugasemdum sínum.      

    AFGREITT

  • Vinna markvisst að því að draga úr höftum á gjaldeyrisviðskiptum.    (Viðvarandi verkefni)  

    AFGREITT AÐ HLUTA

  • Herða þarf fjármálaeftirlit, gefa því auknar heimildir til að fylgja eftir athugunum sínum og ábendingum. (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Koma að eðlilegum lánaviðskiptum við erlenda banka.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ HLUTA

  • Örva þarf innlendar fjárfestingar í atvinnulífinu.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ HLUTA

  • Stuðla að beinum erlendum fjárfestingum.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ HLUTA

  • Mikilvægt að ljúka sem allra fyrst samningum vegna innstæðutrygginga við nágrannaríki.

    AFGREITT

  • Mikilvægt að ljúka uppgjöri á milli gömlu og nýju bankanna.

    AFGREITT

  • Trúverðug efnahagsáætlun og stefnumörkun í ríkisfjármálum til fjögurra ára sem miðar að hallalausum ríkisfjárlögum á ásættanlegum tíma - jafnvægi náist í ríkisfjármálin eigi síðar en 2013.     

    AFGREITT

  • Markmið í ríkisfjármálum í samræmi við sameiginlega áætlun stjórnvalda og AGS.       

    AFGREITT

  • Marka þarf skýra eigendastefnu þar sem fram komi framtíðaráherslur ríkisins sem eiganda bankanna og hvernig henni verði framfylgt.Meðal annars verði kveðið á um hvernig eignarhaldi bankanna verður hagað, hugsanlegri eignaraðild erlendra kröfuhafa og sýn á dreift eignarhald á bönkunum til framtíðar. Þá yrði kveðið á um auglýsingar á stöðum bankastjóra og faglega yfirstjórn þeirra.        

    AFGREITT

  • Þá þarf að gæta þess að yfirtaka ríkisbanka á einstökum fyrirtækjum skekki ekki samkeppnisstöðu á markaði. Tryggt verður að unnið verði eftir faglegu og gagnsæju ferli við sölu þeirra.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Peningastefnunefnd Seðlabankans verður falið að fara yfir kosti og galla þess að breyta peningastefnunni, meta kosti þjóðarinnar í gjaldmiðilsmálum og gera tillögu til stjórnvalda með hliðsjón af því mati.

    AFGREITT

  • Óskað verður eftir mati Seðlabankans á því hvernig best verði dregið úr vægi verðtryggingar í íslensku efnahagslífi.       

    AFGREITT

  • Forsætisráðherra mun láta vinna yfirlit um stöðu og þróun á lykilstærðum í samfélags- og efnhagsmálum til að skilgreina nánar þann vanda sem við er að glíma og framtíðarvalkosti, s.s. í ríkisfjármálum, gjaldmiðilsmálum, atvinnulífi, húsnæðismálum, jafnrétti.

    AFGREITT

  • Samstarf við aðila vinnumarkaðarins um nýjan stöðugleikasáttmála. Ríkisstjórnin lítur á það sem forgangsmál við stjórn efnahagsmála að ná breiðri samstöðu um markvissa áætlun í efnahags-, kjara- og félagsmálum á þeim grunni sem þegar hefur verði lagður í sameiginlegri vinnu ofangreindra aðila.    FOR         

    AFGREITT

  • Skapa þarf forsendur fyrir áframhaldandi og hraðri lækkun vaxta.

    AFGREITT

  • Til að tryggja markvissa framkvæmd efnahagsaðgerða stjórnvalda og endurnýja traust á fjármálakerfi landsins mun ríkisstjórnin ráðast í skipulagsbreytingar í stjórnkerfinu, m.a. með stofnun sérstaks efnhags- og viðskiptaráðuneytis.   (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Verja velferðakerfið eins og kostur er.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Auka traust og trú á íslenskt efnahagslíf.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Hagstæð rekstrarskilyrði fyrir fyrirtæki þannig að störf verði varin og aðstæður skapaðar fyrir fjölgun þeirra á ný.    (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Ríkisstjórnin mun gera það sem í hennar valdi stendur til að tryggja öfluga og skilvirka efnahagsbrotarannsókn og að bæði henni og niðurstöðum rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið verði fylgt eftir af fullum heilindum.     

    AFGREITT AÐ MESTU

Senda grein


Tungumál


Flýtival