Samstarfsyfirlýsing - framtíðarsýn og aðgerðir

Stjórnkerfisbreytingar

Ríkisstjórnin mun gera umtalsverðar stjórnkerfisbreytingar og umbætur í því skyni að gera þjónustu hins opinbera við almenning og atvinnulíf eins góða og kostur er með þeim fjármunum sem til ráðstöfunar eru hverju sinni. Víðtækt samráð verður haft við starfsfólk, almenning og hagsmunaaðila og leitast við að skapa almennan skilning og samstöðu um nauðsyn þessara breytinga. Í kjölfar efnahagshrunsins er nauðsynlegt að endurmeta forgangsröðun í stjórnsýslunni í samræmi við verkefnin framundan.

  • Í fjármálaráðuneyti verður í samráði við forsætisráðuneyti aukin áhersla á framkvæmd og mat á árangri stjórnsýsluumbóta.   (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ HLUTA

  • Í nýju efnahags- og viðskiptaráðuneyti verður almenn hagstjórn, lagaumgjörð og eftirlit með fjármálamarkaði, mat á þróun og horfum í efnahagsmálum. Ennfremur verða þar málefni er tengjast umgjörð íslensks viðskiptalífs.

    AFGREITT

  • Nýtt ráðuneyti mennta- og menningarmála fær auk fyrri verkefna umsjón menningarstofnana og verkefna er nú heyra undir forsætisráðuneyti.

    AFGREITT

  • Utanríkisráðuneyti fær aukið hlutverk á sviði alþjóðlegra viðskipta- og fjárfestingasamninga, auk þess sem Norðurlandaskrifstofa flyst þangað.

    AFGREITT

  • Nýtt ráðuneyti sveitastjórna, samgöngu og byggðaþróunar fær til viðbótar við fyrri verkefni aukið vægi varðandi eflingu sveitarstjórnarstigsins, sem tengist m.a. tilfærslu verkefna frá ríki til sveitarfélaga, auk stefnumótunar á sviði byggðaþróunar.

    AFGREITT

  • Í nýju ráðuneyti mannréttinda og dómsmála verður til viðbótar við verkefni sem fyrir eru, lögð áhersla á verkefni á sviði lýð- og mannréttinda auk þess sem öll framkvæmd almennra kosninga færist þangað, en hún er nú dreifð á þrjú ráðuneyti. Þangað færast ennfremur neytendamál.

    AFGREITT

  • Forsætisráðuneyti fær aukið forystu-, verkstjórnar- og samræmingarhlutverk m.a. með stýringu samráðsnefnda ráðherra.

    AFGREITT

  • Ennfremur verður settur á fót fastur samstarfsvettvangur stjórnvalda við aðila vinnumarkaðarins og önnur lykilhagsmunasamtök um þróun íslensks samfélags.

    AFGREITT

  • Fyrir lok kjörtímabilsins er gert ráð fyrir því að lögfest verði sameining samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytis og mannréttinda- og dómsmálaráðuneytis í nýju innanríkisráðuneyti.

    AFGREITT

  • Öll eignaumsýsla flutt til fjármálaráðuneytis, en hún er nú dreifð á mörg ráðuneyti, þmt. jarðir og eignir á varnar- og öryggissvæðum.

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Ráðuneytið mun stýra stefnumörkun á sviði stjórnsýsluumbóta og –þróunar, þróunar lýðræðis og stjórnskipunar, samkeppnishæfni Íslands og jafnréttis kynjanna. Ennfremur verður lagasamræming innan Stjórnarráðsins efld undir forystu þess. Til að ofangreindar breytingar verði markvissari verður starfsemi ráðuneytisins endurskipulögð til að halda utan um umbótaverkefni annars vegar og verkefnisstjórn um samfélagsþróun hins vegar.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Lögð er til fækkun ráðuneyta í áföngum úr tólf í níu, ný forgangsröðun þar sem þess er þörf og breytt verkaskipting þar sem færð eru saman verkefni til að ná sem mestum samlegðaráhrifum. Lögð er áhersla á vandaðan undirbúning breytinganna.

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Auk umbóta á stjórnsýslu atvinnuvega og nýsköpunar, auðlinda- og efnahagsstjórnunar er lögð sérstök áhersla á umbætur á sviði mannréttindamála og lýðræðisþróunar sem og að vanda  stjórnsýsluhætti og efla traust almennings á stofnunum hins opinbera.

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Nýtt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sett á stofn sem tekur til allra atvinnugreina (utan opinbera geirans og fjármálamarkaðarins), nýsköpunar og þróunar innan þeirra. Þar verða teknar ákvarðanir um nýtingu auðlinda á grundvelli rannsókna og ráðgjafar frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti.

    Í VINNSLU

  • Nýtt umhverfis- og auðlindaráðuneyti fær auk þeirra verkefna sem fyrir eru lykilhlutverk varðandi rannsóknir, nýtingarstefnu, ráðgjöf og verndun á sviði auðlindamála. Þangað flyst ennfremur umsýsla Rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma.

    Í VINNSLU

  • Heilbrigðisráðuneyti og félags- og tryggingamálaráðuneyti verða óbreytt að öðru leyti en því að stefnt er að því að auka samvinnu milli ráðuneytanna um verkefni sem heyra undir bæði ráðuneyti.

    AFGREITT

  • Heimahjúkrun og öll þjónusta við aldraða á hjúkrunarheimilum færist til félags- og tryggingingamálaráðuneytis.

    AFGREITT

  • Stefnt er að því að málefni aldraðra og fatlaðra færist til sveitarfélaga jafnhliða því að ráðuneytin sameinast.  

    AFGREITT AÐ HLUTA

Senda grein


Tungumál


Flýtival