Samstarfsyfirlýsing - framtíðarsýn og aðgerðir
Utanríkis- og Evrópumál
Ríkisstjórnin leggur áherslu á sjálfstæða íslenska utanríkisstefnu. Þær miklu breytingar sem orðið hafa á undanförnum árum á sviði utanríkis- og öryggismála, og ná einnig til viðskipta, stjórnmála og umhverfismála, kalla á nýja sýn og nýja nálgun í utanríkismálum. Ríkisstjórnin vill kappkosta að alþjóðasamfélagið stuðli með nýjum hætti að sameiginlegu öryggi, beiti sér fyrir nýjum reglum um fjármagnsmarkaði og aðgerðir gegn spillingu, geri nýjan loftslagssáttmála, tryggi að alþjóðalög gildi um málefni norðurslóða og sameinist um nauðsynlegar og sanngjarnar aðgerðir til að vinna bug á heimskreppunni.
-
Ákvörðun um aðild Íslands að Evrópusambandinu verði í höndum íslensku þjóðarinnar sem mun greiða atkvæði um samning í þjóðaratkvæðagreiðslu að loknum aðildarviðræðum.
Í VINNSLU
-
Utanríkisráðherra mun leggja fram á Alþingi tillögu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu á vorþingi.
AFGREITT
-
Meðal meginverkefna utanríkisþjónustunnar á næstu árum verður að endurheimta orðspor Íslands á alþjóðavettvangi, byggja upp ímynd lands og þjóðar á grundvelli þekkingar okkar, menningar og mannauðs og styðja við markaðssókn íslenskra fyrirtækja. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Ríkisstjórnin leggur áherslu í sínum málflutningi á baráttu fyrir mannréttindum og kvenfrelsi, friði og afvopnun og gegn fátækt, félagslegu ranglæti, misskiptingu og hungursneyð, m.a. með markvissri þróunaraðstoð. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Framlag Íslands til friðargæslu í heiminum verður fyrst og fremst á sviði sáttaumleitana, uppbyggingar borgaralegra stofnana, jafnréttis- og mannúðarmála. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Áfram unnið á grundvelli nýrra laga um þróunarsamvinnu og aðgerðaáætlana í víðtæku samráði við félagasamtök og fræðasamfélagið. Íslendingar sýni metnað við stefnumörkun á sviði þróunarsamvinnu og nýti sérþekkingu sína til raunhæfra verkefna í þróunarlöndu. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Áfram verði unnið að mótun öryggisstefnu Íslands á grundvelli eigin hættumats í nánu samstarfi við nágrannaþjóðir og önnur bandalagsríki. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ HLUTA
-
Áhersla verði lögð á að byggja upp pólitísk tengsl við heimastjórn Palestínu og að Íslendingar styðji sjálfsákvörðunarrétt og sjálfstætt ríki þeirra og styðji áfram Friðarráð palestínskra og ísraelskra kvenna. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Ísland verði boðið fram sem vettvangur fyrir friðarumræðu, þar á meðal fyrir alþjóðlegar ráðstefnur og fundi fræðimanna og stjórnmálaleiðtoga um þau efni. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ HLUTA
-
Ísland verður friðlýst fyrir kjarnorkuvopnum og íslensk stjórnvöld munu beita sér fyrir kjarnorkuafvopnun á alþjóðavettvangi. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ HLUTA
-
Víðtækt samráð verður á vettvangi Alþingis og við hagsmunaaðila um samningsmarkmið og umræðugrundvöll viðræðnanna. (ESB) (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Varnarmálastofnun verði endurskoðuð, sem og loftrýmisgæsla, í samræmi við áherslur í áhættumatsskýrslu fyrir Ísland. Unnið verði á grundvelli víðtæks öryggishugtaks og áhersla lögð á sameiginlegt alþjóðlegt öryggi.
AFGREITT AÐ MESTU
-
Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir því að nýr alþjóðlegur loftslagssamningur verði samþykktur í Kaupmannahöfn og leggi sitt af mörkum með því að flytja út þekkingu sína og reynslu af endurnýjanlegum orkugjöfum. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Málefni norðurslóða forgangsmál og viðfangsefni svæðisins leyst á grundvelli gildandi alþjóðasamninga, alþjóðastofnana og svæðasamstarfs. Áhersla á að vernda viðkvæmt lífríki svæðisins, sjálfbæra nýtingu auðlinda og aukið samstarf á Norðurlöndum um viðbúnað gegn umhverfisvá og slysum á norðurhöfum, leit og björgun. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
