Samstarfsyfirlýsing - framtíðarsýn og aðgerðir

Lýðræði og mannréttindi

Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir opinni stjórnsýslu, auknu gagnsæi og lýðræðisumbótum. Aukin áhersla verður lögð á mannréttindafræðslu og  kvenfrelsi.

  • Jafnréttismál flytjist í forsætisráðuneytið. 

    AFGREITT

  • Lög um fjármál stjórnmálaflokka verði yfirfarin og endurskoðuð í ljósi reynslunnar.

    AFGREITT

  • Settar verði siðareglur fyrir ríkisstjórn og stjórnsýsluna. 

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Frumvarp um stjórnlagaþing – þjóðfund – verður lagt fram á vorþingi. Kosið verði til þingsins í síðasta lagi samhliða sveitarstjórnarkosningum 2010. Við undirbúning málsins og í aðdraganda kosninganna verði gengist fyrir víðtækri samfélagsumræðu um helstu álitamál og viðfangsefni við endurskoðun stjórnarskrárinnar.

    AFGREITT

  • Sett verði almenn lög um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna.

    AFGREITT

  • Stefnt verði að eflingu Alþingis, m.a. með endurskoðun ákvæða í þingskapalögum um eftirlitshlutverk þingsins og að lokið verði þeirri vinnu sem hafin er um endurskoðun laga um ráðherraábyrgð og landsdóm. 

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Ein hjúskaparlög verði lögfest. 

    AFGREITT

  • Því mun ríkisstjórnin beita sér fyrir því að jafna hlutfall kynjanna á öllum sviðum samfélagsins og grípa til sértækra aðgerða sé þess þörf.   (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Upplýsingalög verði endurskoðuð og aðgengi almennings og fjölmiðla að upplýsingum aukið.

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Lokið verði gerð jafnréttisstaðla á kjörtímabilinu  og starf jafnréttisfulltrúa ráðuneyta verður eflt.  (Viðvarandi verkefni)

    Í VINNSLU

  • Áhrif kvenna í endurreisninni verði tryggð.   (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Ríkisstjórnin grípi til aðgerða til að útrýma kynbundnum launamun í samvinnu við hagsmunasamtök og aðila vinnumarkaðarins.   (Viðvarandi verkefni)

    Í VINNSLU

  • Jafnframt verði kynjasjónarmið höfð að leiðarljósi í aðgerðum til atvinnusköpunar.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Lög um skipan hæstaréttardómara og héraðsdómara verði endurskoðuð. 

    AFGREITT

  • Ein hjúskaparlög verði lögfest.

    AFGREITT

  • Samskiptareglur ríkis og sveitarfélaga verði bundnar í lög til að stuðla að öguðum og formföstum samskiptum.

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Aðgerðaáætlun gegn mansali, kynbundnu ofbeldi og heimilisofbeldi verður fylgt eftir.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Unnar verði tillögur að eflingu lýðræðis á sveitarstjórnarstigi í samvinnu við sveitarfélög og samráði við íbúa um land allt.

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Undirbúnar verði breytingar á kosningalögum með það að markmiði að jafna vægi atkvæða og koma til móts við ábendingar Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu um framkvæmd kosninga.

    Í VINNSLU

  • Lagt fram frumvarp um persónukjör og haft samráð við sveitarfélög um útfærslu þess í tengslum við komandi sveitarstjórnarkosningar.

    Í VINNSLU

  • gerð verði áætlun í mannréttindamálum að norrænni fyrirmynd.

    Í VINNSLU

  • Auk þess verði sett ákvæði um gerð siðareglna á sveitarstjórnarstigi.

    AFGREITT

  • Sett verði á stofn tekjustofnanefnd sem hafi það hlutverk að vinna tillögu um breikkun og styrkingu tekjustofna sveitarfélaga.

    AFGREITT

  •  Efnahagssamráð ríkis og sveitarfélag verði eflt.

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Sveitarfélög verði efld með flutningi verkefna frá ríki til sveitarfélaga á sviði málefna fatlaðra, aldraðra og heilbrigðisþjónustu. 

    AFGREITT AÐ HLUTA

  • Ríkisstjórnin grípi til aðgerða til að útrýma kynbundnu ofbeldi, m.a. með lögfestingu austurrísku leiðarinnar.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Heildstæð lög um fjölmiðla verði sett þar sem ritstjórnarlegt sjálfstæði og réttur blaðamanna eru tryggð. 

    AFGREITT

  • Mannréttindafræðsla efld á öllum skólastigum.   (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Mannréttindasamningar sem Ísland hefur undirritað og fullgilt verði leiddir í lög.

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Sérstaklega verði hugað að forvarnar- og viðbragðsáætlun til að bregðast við auknu heimilisofbeldi samhliða versnandi efnahagsástandi.

    AFGREITT AÐ HLUTA

  • Unnið verður úr tillögum jafréttisvaktarinnar.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Jafnréttisstofa verði efld og sjálfstæði hennar aukið.  (Viðvarandi verkefni)

    Í VINNSLU

  • Rík áhersla verður lögð á að tryggja rétt og þátttöku fólks af erlendum uppruna og lög um hælisleitendur verði endurskoðuð. Ný lög sett um málefni innflytjenda.

    AFGREITT AÐ HLUTA

  • Hugað verði að réttarbótum í málefnum trans-gender fólks í samræmi við ábendingar Umboðsmanns Alþingis.

    AFGREITT AÐ HLUTA

Senda grein


Tungumál


Flýtival