Samstarfsyfirlýsing - framtíðarsýn og aðgerðir
Atvinnumál
Meginverkefni ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum verður að draga úr atvinnuleysi með markvissum aðgerðum, útrýma langtímaatvinnuleysi og skapa traustari grundvöll fyrir íslenskt atvinnulíf til framtíðar. Áhersla verður lögð á fjölbreytt atvinnulíf, jafnan en stöðugan hagvöxt, nýsköpun og sjálfbæra nýtingu til lands og sjávar.
-
Við innkaup ríkisins, þar á meðal vistvæn innkaup, verði m.a. horft til þess að styðja við bakið á innlendri atvinnustarfsemi og nýsköpun. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Forgangsröðun verkefna hjá ríkinu verði í þágu mannaflsfrekra framkvæmda, s.s. viðhalds opinberra bygginga. Þar verði sérstaklega hugað að bættu aðgengi að opinberum byggingum um allt land. Leitað verði leiða til að flýta hönnun opinberra mannvirkja. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir því að mótuð verði heildstæð atvinnustefna fyrir Ísland, byggð á jafnræði atvinnugreina, jafnrétti kynjanna, heilbrigðum viðskiptaháttum og grænni atvinnuuppbyggingu í samræmi við hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar. Jafnframt verði hugað að samkeppnishæfi íslensks atvinnulífs í alþjóðlegum samanburði. Stefnan verði útfærð í formlegu samráði stjórnvalda, sveitarfélaga, aðila vinnumarkaðarins, og háskólasamfélagsins.
AFGREITT AÐ MESTU
-
Ríkisstjórnin mun efna til víðtæks samráðs undir forystu forsætisráðuneytisins um sóknaráætlanir fyrir alla landshluta til eflingar atvinnulífs og lífsgæða til framtíðar. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Brýnt er að verja störf samhliða því sem gripið verði til aðgerða til að störfum fjölgi. Allar aðgerðir taka mið af ólíkri stöðu kynjanna og mismunandi áhrifum á byggðir landsins. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Ríkisstjórnin vill efla græna atvinnustarfsemi, þar með talin verkefni þar sem hrein endurnýjanleg orka er nýtt á sjálfbæran hátt til verðmæta- og atvinnusköpunar. Lögð verði áhersla á að kortleggja sóknarfæri Íslands í umhverfisvænum iðnaði og ýta undir fjárfestingar með tímabundnum ívilnunum og hagstæðu orkuverði. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Ríkisstjórnin vill efla rannsóknir, þróun og framleiðslu á innlendu vistvænu eldsneyti og fjölga fjölorkustöðvum. Stefnt verði að því að Ísland geti á komandi árum orðið leiðandi í tilraunum og framleiðslu á vistvænum orkugjöfum, m.a. með stuðningi við rannsóknir, þróun og uppbyggingu innviða. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Eflt verði stuðningsnet atvinnuþróunar, rannsókna og nýsköpunar, m.a. með uppbyggingu sjóða, atvinnuþróunarfélaga og frumkvöðlastarfs um land allt. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ HLUTA
-
Lögð verði áhersla á frekari uppbyggingu ferðamannastaða og heilsársferðaþjónustu. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Stuðlað verði að auknum rannsóknum, þróun og nýsköpun í ferðaþjónustu. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Aukin rækt verði lögð við uppbyggingu og markaðssetningu menningarferðaþjónustu og íslenskrar matargerðarlistar. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Stuðlað verði að betri orkunýtingu, svo sem með uppbyggingu iðngarða og iðjuvera, garðyrkjustöðva, endurvinnslu og annarrar starfsemi sem nýtir gufuafl sjálfbærra jarðvarmavirkjana. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Umhverfi sprota- og nýsköpunarfyrirtækja verði bætt með lagfæringu á skattalögum til þess að ívilna megi vegna rannsókna og þróunar. Auk þess verði tímabundið veittur frádráttur frá skatti vegna fjárfestinga í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Ríkið efni til samstarfs við sveitarfélög, félagasamtök og Vinnumálastofnun um að sköpuð verði fleiri sumarstörf við umhverfisvæn verkefni, s.s. landgræðslu og uppbyggingu í kringum ferðamannastaði.
AFGREITT
-
Opinberir sjóðir og samkeppnissjóðir leggi sitt af mörkum til atvinnusköpunar með því að taka mið af fjölgun starfa við ráðstöfun fjármagns án þess þó að slaka á faglegum kröfum. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Efld verði markaðssókn í ferðaþjónustu með sameiningu landkynningarmála undir merkjum nýrrar Íslandsstofu. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Reglum LÍN verði breytt til að auðvelda námsmönnum sem koma af vinnumarkaði sem vilja hefja nám í stað virkrar atvinnuleitar að fá námslán til framfærslu.
AFGREITT
-
Sköpuð verði ný atvinnutækifæri fyrir ungt fólk t.d. með því að efla Nýsköpunarsjóð námsmanna og ýta úr vör sumarverkefnum fyrir framhaldsskólanema.
AFGREITT
-
Svigrúm bænda til heimaframleiðslu, vöruþróunar og heimasölu með upprunamerkingum verði aukið og nýtt til sóknar í ferðaþjónustu.
AFGREITT
-
Stuðningskerfi landbúnaðarins verði endurskoðað með áherslu á að auðvelda nýliðun.
AFGREITT AÐ HLUTA
-
Átak verði gert í lífrænni ræktun og bændum tryggður aðlögunarstuðningur skipti þeir úr hefðbundinni ræktun yfir í lífræna.
AFGREITT
-
Ríkisstjórnin mun standa vörð um innlendan landbúnað og tryggja fæðu- og matvælaöryggi þjóðarinnar og standa vörð um störf í matvælaiðnaði.
AFGREITT AÐ MESTU
-
Íslenskur landbúnaður verði efldur með áherslu á fullvinnslu afurða og markaðssókn innanlands sem utan. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Rekstur og uppbygging þjóðgarða verði efld einsog aðstæður leyfa og þar með stutt við atvinnuuppbyggingu, s.s. í ferðaþjónustu á landsbyggðinni, samhliða náttúruvernd. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ HLUTA
-
Lögð verði áhersla á endurvinnslu og endurnýtingu í því augnamiði að skapa störf og verðmæti.
Í VINNSLU
-
Ráðist verði í markaðssókn erlendis á sviði lista, menningar, hönnunar og hugvitsgreina. Stutt verði við bakið á nýsköpunarverkefnum. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Nýttir verði möguleikar Íslands á sviði heilsutengdrar ferðaþjónustu með því að nýta hreina náttúru og heilbrigða ímynd landsins til að efla ferðaþjónustu í tengslum við leirböð, heilsurækt, endurhæfingu og almenna lífsstílsbreytingu. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ HLUTA
-
Leitað verði samstarfs við aðila vinnumarkaðarins um virkar vinnumarkaðsaðgerðir til að sporna gegn atvinnuleysi, þar sem m.a. verði metnir kostir þess að stytta vinnuvikuna og bjóða sveigjanleg starfslok fyrir þá sem það kjósa. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
-
Efld verði úrræði Vinnumálastofnunar og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands þar sem fyrirtæki geta ráðið fólk af atvinnuleysisskrá tímabundið með stuðningi Atvinnuleysistryggingasjóðs.
AFGREITT
-
Sérstök áhersla verði lögð á að koma í veg fyrir að langtímaatvinnuleysi skjóti rótum með því að virkja fjölþætt úrræði Vinnumálastofnunar og stuðla að endurmenntun atvinnuleitenda. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ HLUTA
-
Staðinn verði vörður um opinber störf, ekki síst í velferðarþjónustu og menntastofnunum, og í því skyni gripið til aðgerða sem auka kjarajöfnuð hjá ríkinu og fyrirtækjum og stofnunum í eigu þess. (Viðvarandi verkefni)
AFGREITT AÐ MESTU
