Samstarfsyfirlýsing - framtíðarsýn og aðgerðir

Umhverfi og auðlindir

Standa þarf vörð um sameign þjóðarinnar á náttúruauðlindum sínum. Einn af hornsteinum umhverfisstefnu ríkisstjórnarinnar er að þær séu nýttar með sjálfbærum hætti. Stjórnarskrá lýðveldisins þarf að breyta svo að hún verði grundvöllur umhverfisverndar til framtíðar. Stefna ríkisstjórnarinnar í umhverfismálum byggir á meginreglum umhverfisréttar, svo sem varúðarreglunni og mengunarbótarreglunni, eins og þær eru skilgreindar í alþjóðlegum samningum sem Ísland er aðili að. Umhverfisvernd sem hefur sjálfbæra þróun samfélags og efnhags að leiðarljósi er sá grunnur sem ný atvinnu- og auðlindastefna stjórnarinnar byggir á. Þannig eru tekin mikilvæg skref í átt til hins nýja græna hagkerfis sem skilar jöfnum vexti, og tryggir að ekki sé gengið á höfuðstól auðlindanna.

  • Kannaður verði grundvöllur þess að leggja á umhverfisgjöld tengd ferðaþjónustu sem renni til uppbyggingar þjóðgarða og annarra fjölsóttra og friðlýstra áningarstaða ferðamanna og til eflingar ferðaþjónustu. 

    AFGREITT

  • Náttúruvernd verði hafin til vegs og staða hennar innan stjórnarráðsins styrkt til muna.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Mótuð verði heildstæð orkustefna sem miði að því að endurnýjanlegir orkgjafar leysi innflutta orku af hólmi. Við orkuframleiðslu með vatnsafli og jarðvarma verði gætt varúðar- og verndarsjónarmiða. Orkustefnan styðji við fjölbreytt atvinnulíf, með áherslu á uppbyggingu vistvæns hátækniiðnaðar. Í orkustefnu verði sjálfbær nýting höfð að leiðarljósi sem forðast m.a. ágenga nýtingu á jarðhitasvæðum.

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Stefnt verði að jafnræði í verðlagningu raforku í ólíkum atvinnugreinum.  (Viðvarandi verkefni)

    Í VINNSLU

  • Gerð verði áætlun um orkusparnað, jafnt fyrir atvinnufyrirtæki og heimili.

    AFGREITT

  • Stuðlað verði að gagnsæi í orkusölusamningum og leitað leiða til að aflétta leynd af orkuverði til erlendra stóriðjufyrirtækja.   (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Lögð er rík áhersla á að ljúka gerð rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða sem allra fyrst og hún verði lögð fyrir Alþingi á vetri komanda og fái lögformlega stöðu í stjórnkerfinu. Engar frekari ákvarðandir tengdar virkjun Neðri-hluta Þjórsár verð teknar þar til rammaáætlun liggur fyrir.

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Tryggja að erfðabreytt matvæli séu merkt þannig að neytendum sé ljóst innihald matvæla við innkaup.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT

  • Ný náttúruverndaráætlun til 2013 verði afgreidd á vorþingi.

    AFGREITT

  • Áhersla verði lögð á að marka  stefnu  um líffræðilegan fjölbreytileika og vernd búsvæða tegunda, með það að markmiði að tryggja vernd líffræðilegrar fjölbreytni vistkerfa á landi, í sjó og vötnum.

    AFGREITT

  • Ný skipulags- og mannvirkjalög verði lögð fram á Alþingi að höfðu samráði við sveitarfélög. Þar verði kveðið á um landsskipulagsstefnu, sem mótuð verður í samstarfi ríkis og sveitarfélaga, þar sem litið verði til landsins sem einnar heildar.

    AFGREITT

  • Rekstur og uppbygging þjóðgarða og friðlýstra svæða verði tekin til endurskoðunar með það að markmiði að sameina stjórn þeirra, styrkja stöðu þeirra og styðja við fjölbreytta atvinnuuppbyggingu um allt land. 

    AFGREITT

  • Lokið verði við aðgerðaáætlun um samdrátt í losun gróðurhúslofttegunda um 50-75% til 2050, með tímasettum og tölulegum markmiðum, eigi síðar en vorið 2010. Í áætluninni verði lögð sérstök áhersla á samdrátt í losun frá samgöngum og fiskiskipum.

    AFGREITT

  • Ísland standi við loftslagsskuldbindingar sínar og leggi fram metnaðarfulla áætlun í loftslagsmálum fyrir alþjóðlega loftslagsráðstefnuna í Kaupmannahöfn í desember 2009.

    AFGREITT

  • Efla fræðslu til almennings og fyrirtækja um vistvæn innkaup, umhverfismerkta vöru og gildi sjálfbærrar neyslu, með það að markmiði að nýsamþykkt vistvæn innkaupastefna hins opinbera nái tryggri fótfestu í samfélaginu öllu.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ HLUTA

  • Náttúruverndarlög verði endurskoðuð, verndarákvæði treyst og almannaréttur tryggður. Sérstaklega skal hugað að náttúruvernd strandsvæða og verndunar svæða í sjó.

    AFGREITT AÐ HLUTA

  • Innleiðingu Árósasamningsins í íslenskan rétt verði hraðað og nauðsynlegar lagabreytingar kynntar á haustþingi 2009.

    AFGREITT

  • Endurskoða lög og reglur um sorphirðu og endurvinnslu með þarfir almennings og umhverfis að leiðarljósi, svo markmið um minni urðun og meiri endurvinnslu náist.

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Vatnatilskipun ESB verði innleidd og aðlöguð íslenskum aðstæðum með því að lokið verði við frumarp til nýrra vatnalaga, sem tryggi verndun og sjálfbæra nýtingu ferskvatns og skilgreini aðgang að vatni sem grundvallarmannréttindi.

    AFGREITT

  • Verðleggja losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda og gera viðskipti með þær möguleg.

    AFGREITT AÐ MESTU

  • Staðfesta Landslagssáttmála Evrópu með það að markmiði að vernda landslagsheildir og ósnortin víðerni. 

    Í VINNSLU

  • Friðlandið í Þjórsárverum verði stækkað og friðun þess lokið hið fyrsta.

    Í VINNSLU

  • Unnin verði áætlun um sjálfbærar samgöngur í samvinnu við sveitarfélögin, með það að markmiði að draga úr þörf fyrir einkabílinn. Í slíkri stefnu verði  almenningssamgöngur um allt land stórefldar og fólki auðveldað að komast leiðar sinnar gangandi eða á reiðhjóli. Almenningssamgöngur verði sjálfsagður hluti samgönguáætlunar.  (Viðvarandi verkefni)

    AFGREITT AÐ MESTU

Senda grein


Tungumál


Flýtival