„Ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs er mynduð um að tryggja efnahagslegan og félagslegan stöðugleika og leita þjóðarsamstöðu um leið Íslands til endurreisnar ..."
„Gangi áætlanir ríkisstjórnarinnar í efnahags- og ríkisfjármálum eftir eru góðar líkur á að hagvöxtur verði orðinn viðunandi, verðbólga lág, gengi stöðugt og atvinnuleysi hafi dregist verulega saman við lok kjörtímabilsins. Samhliða endurreisninni er mikilvægt að unnið sé markvisst að því í samvinnu allrar þjóðarinnar að leggja grunn að nýrri sókn í íslensku atvinnulífi og betra samfélagi, samfélagi sem mun skipa sér í fremstu röð í verðmætasköpun, velmegun, velferð og sönnum lífgæðum.
Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs ætlar sér að verða norræn velferðarstjórn í besta skilningi þess orðs." Lesa meira
