Vefir Stjórnarráðsins
Gátlisti fyrir skrif á vef Stjórnarráðs Íslands
Fyrir hvern er skrifað?
- Hver er markhópurinn - settu þig í spor þess sem mun koma til með að nýta sér þjónustuna.
Framsetning á efni
- Notaðu lista og punkta (e: bullets) til að brjóta upp langar greinar og lýsa aðalatriðum.
- Gættu þess að skipta grein sem er lengri en 3-4 efnisgreinar upp með lýsandi undirfyrirsögnum.
Orðaval
- Skrifaðu kjarnyrtan texta og forðist málalengingar.
- Haltu kommusetningum í lágmarki – miðaðu við setningar upp á 15-20 orð.
- Ekki nota skammstafanir eða skáletrun í texta.
- Forðastu að nota formleg og „erfið“ orð sem algeng eru úr lagatexta. Hafðu skýringar með flóknum orðum.
- Gættu að samræmi í orðanotkun.
Efni undirbúið fyrir birtingu á vef
- Með öllum greinum þarf að fylgja stutt samantekt um umfjöllunarefnið sem nýtist sem inngangstexti og auðveldar notendum að átta sig á innihaldi greinarinnar.
- Ef myndefni fylgir greininni þarf að fylgja viðeigandi skýringartexti, þetta nýtist öllum notendum en sérstaklega sjónskertum og blindum einstaklingum.
- Ef töflur, línu- eða súlurit eru notuð í greininni þarf að skrifa sérstaka samantekt um innihaldið og láta fylgja greininni.
Skýrslur og fylgiskjöl
- PDF-skjöl þurfa að innihalda bókamerktar fyrirsagnir. Fylgið leiðbeiningum um aðgengileg skjöl á www.ut.is/vefhandbok/yfirlit/notagildi/adgengi/nr/3261
- Ef mögulegt er að birta einfalda textaskrá af skýrslum sem settar eru upp í dálkum eða innihalda mikið grafískt efni er það góð leið.
- Fylgið nafnareglu (t.d. dagsetning-skýrslunafn-ráðuneyti) þegar ytri skrám eru gefin heiti, notið bandstrik - , ekki undirstrik _. Dæmi: 2009-15-04-skyrsla-um-throun-mala-FOR.pdf
