Vefir Stjórnarráðsins

Leit á vefnum

Stjórnarráðsvefurinn er afar stór og efnismikill vefur. Því þarf að vanda val leitarorða vel svo niðurstöður verði ekki óyfirstíganlega margar. Efst í hægra horni glugga er leitin ávallt tiltæk og sjálfgefin er leit í öllum ráðuneytum. Leit í öllum ráðuneytum skilar niðurstöðum á einni síðu, flokkuðum eftir uppruna skjalanna.

Til að þrengja leitina frekar má á niðurstöðusíðu síðan merkja sérstaklega við það eða þau ráðuneyti sem leita á sérstaklega í og smella á SÍA - hnappinn. Þá einskorðast niðurstöður við það eða þau ráðuneyti sem merkt var við.

Ef þú veist ekki hvaða ráðuneyti fer með það mál sem þú ert að leita að er mælt með því að leit sé framkvæmd í öllum ráðuneytum í einu og val leitarorða vandað. Einnig er bent á veftré einstakra ráðuneyta en í þeim sést glögglega hvernig vefir þeirra eru skipulagðir.

Ítarleg leit

  • " " (gæsalappir)
    Leitarskipun: "Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar" (leitarstrengur innan gæsalappa)
    Niðurstaða: Þau skjöl sem innihalda strenginn Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar.
    Þegar leitað er að Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar (án gæsalappa) finnast öll skjöl sem innihalda orðið "yfirlýsing" og/eða "ríkisstjórnarinnar".
  • ? (spurningamerki)
    Leitarskipun: miss?
    Niðurstaða: Allar síður sem innihalda "miss" auk mismunandi endastafs, t.d. missa, missi, misst.
  • * (stjarna)
    Leitarskipun: miss*
    Niðurstaða: Allar síður sem innihalda orðmyndina "miss", t.d. missti, misskilningur.
  • Loðin leit
    Leitarskipun: próf~
    Niðurstaða: Allar síður sem innihalda orðmyndina próf og líkar orðmyndir, t.d. próf og prófi
  • + (plús)
    Leitarskipun: +VSK skattar
    Niðurstaða: Allar síður sem innihalda orðið "VSK" og hugsanlega einnig "skattar".
  • ~ (bugða/tilde)
    Leitarskipun: "ríkisstjórn forsætisráðherra" ~10
    Niðurstaða: Allar þær síður sem innihalda "ríkisstjórn" og "forsætisráðherra" og bilið á milli orðanna er minna en 10 orð.
  • OR
    Leitarskipun: maður OR kona
    Niðurstaða: Allar síður sem innihalda annað hvort "maður" eða "kona" eða hvort tveggja.
  • AND
    Leitarskipun: maður AND kona
    Niðurstaða: Allar síður sem innihalda bæði orðin.
  • NOT
    Leitarskipun: maður NOT kona
    Niðurstaða: Allar síður sem innihalda orðið "maður" en ekki "kona".



Tungumál


Flýtival