Vefir Stjórnarráðsins

Aðgengisstefna

Stjórnarráð Íslands hefur einsett sér að gera Stjórnarráðsvefinn aðgengilegan fötluðum. Leitast er við að allt efni á vefnum standast að minnsta kosti viðmiðunarreglur WCAG 1.0 af gerð A*. Stjórnarráð Íslands endurskoðar stefnu sína reglulega í því skyni að uppfylla enn betur kröfur um aðgengi allra að vefnum. Einstök ráðuneyti geta hvert fyrir sig sett sér markmið um að ná tilteknu aðgengisstigi fyrr en kveður á um í sameiginlegri aðgengisstefnu fyrir Stjórnarráðið og vísað í það á vef sínum. Vefstjórn Stjórnarráðsins hefur það hlutverk að tryggja að Stjórnarráðsvefurinn uppfylli ávallt sett markmið um aðgengi.

Á Stjórnarráðsvefnum er í ýmsum tilvikum vísað á vefi stofnana, félagasamtaka eða fyrirtækja. Aðgengisstefna Stjórnarráðsvefsins nær eingöngu til hans en ekki þeirra vefja sem vísað er á.

Efni frá þriðja aðila sem birt er á vefjum ráðuneyta skal uppfylla kröfur um aðgengi fyrir alla. Þá verður farið fram á að hugbúnaðarsalar sem ráðuneytin skipta við geri grein fyrir því hvernig búnaður þeirra tekur tillit til aðgengismála. Jafnframt skal tryggt að starfsmenn hafi aðgang að þeim hugbúnaði sem nauðsynlegur er til að gera efni aðgengilegt.

Leitast er við að starfsfólk fái þá þjálfun sem til þarf miðað við starf sitt og hlutverk. Boðið verður upp á endurmenntun eftir því sem kröfur um aðgengi breytast eða ný tækni kemur fram. Þetta er meðal annars gert með því að birta upplýsingar um aðgengismál á UT-vefnum.

* Viðmiðunarreglur WCAG 1.0 eru frá árinu 1999. Nýjar reglur WCAG 2.0 tóku gildi í desember 2008 og eru þær því nú viðmiðunarreglur Stjórnarráðsvefsins. Stöðugt er unnið er að því að yfirfara vefinn og uppfæra í samræmi við nýjar reglur.

Fyrirvari

Ýmsar eldri PDF-skrár sem eru á Stjórnarráðsvefnum eru ekki aðgengilegar fyrir skjálesara. Vinsamlegast hafið samband við viðkomandi ráðuneyti ef PDF-skrá er ekki aðgengileg og leitast verður við að finna viðunandi lausn.

Síðast breytt 14. 6. 10




Tungumál


Flýtival