Vefir Stjórnarráðsins

Úr stefnu ríkisstjórnarinnar 2008-2012

Þjónusta

Ísland verði netríki – gæðaþjónusta með sjálfsafgreiðslu á einum stað

Markmið

1. Sjálfsafgreiðsla á Netinu
Netborgarinn geti afgreitt sig sjálfur hvenær sem er, hvar sem er og án tafar. Það gildi um hvers kyns þjónustu þar sem því verður við komið, til dæmis umsóknir, vottorð, tilkynningar, tímapantanir, gagnaskil og
fleira sem snýr að samskiptum við opinbera aðila. Hægt verði að fylla í eyðublöð á Netinu, senda inn, fylgjast með afgreiðslu og fá úrlausn mála. Biðraðir í þjónustustofnunum heyri sögunni til.

2. Netmiðstöð
Island.is verði netmiðstöð sem gefur yfirlit um þjónustu opinberra aðila. Þar verði á einum stað aðgengi að upplýsingum og þjónustu allra opinberra stofnana.

3. Upplýsingaþjónusta
Netborgarinn geti nálgast upplýsingar um sig sjálfan sem geymdar eru í kerfum opinberra aðila og einnig aðrar mikilvægar upplýsingar í vörslu þeirra.

4. Netborgarinn
Gæði opinberrar þjónustu á Netinu verði aukin með því að miða hana við þarfir og ávinning netborgarans. Hugað verði að aðgengi og þörfum allra samfélagshópa, svo sem fatlaðra, innflytjenda, þeirra sem búa í dreifbýli, erlendra viðskiptaaðila, eldri borgara og yngstu borgaranna. Í boði verði valkostir í búnaði til að nálgast opinbera þjónustu. Þannig þróist netríkið miðað við þarfir netborgarans.

Stefna ríkisstjórnar Íslands um upplýsingasamfélagið 2008-2012 í heild sinni á pdf-formi




Tungumál


Flýtival