Um stjórnarráðsvefinn
Vefurinn býður upp á mikla möguleika í miðlun opinberra upplýsinga og þjónustu. Á undanförnum árum hafa opinberir aðilar á Íslandi byggt upp þjónustu á vefnum með það að markmiði að hagræða og auka þjónustu við fyrirtæki og almenning í landinu, enda eru Íslendingar meðal mikilvirkustu vefnotenda í heiminum.
Vefurinn þróast hratt og smátt og smátt eru að mótast venjur og viðmiðanir sem byggja á þeirri reynslu sem þegar er fengin af notkun þessa miðils. Það er mikilvægt að opinberir aðilar taki virkan þátt í þessari þróun, sýni frumkvæði í að byggja upp vandaða vefi og móti sér reglur í umgengni við þá, sem allir geta fært sér í nyt.
Markmið vefsins er að gera almenningi og fyrirtækjum kleift að leita hvers kyns upplýsinga sem stjórnsýslan miðlar og sækja rafræna opinbera þjónustu með einföldum og skjótvirkum hætti.
Hér fyrir neðan er vísað í nánari upplýsingar um stjórnarráðsvefinn.
