Stefnur

Innkaupastefna

Árið 2002 setti ríkið sér innkaupastefnu í því augnamiði að auka hagkvæmni, samkeppni, ábyrgð og gagnsæi í innkaupum hins opinbera. Jafnframt voru sett árangursmarkmið fyrir næstu fjögur árin. Sá árangur sem náðist með setningu Innkaupastefnu ríkisins er ótvíræður. Fjárhagsleg markmið sem sett voru í upphafi náðust að mestu leyti og er unnið að því að setja ný markmið og jafnframt skerpa á helstu áhersluatriðum stefnunnar.

Innkaupastefna ríkisins er leiðbeining fyrir ráðuneyti og ríkisstofnanir en gerir jafnframt kröfur um að farið sé að settum leikreglum og sýnt fram á skilgreindan sparnað. Efnisatriði stefnunnar hafa gildi stjórnsýslufyrirmæla fyrir ráðuneyti og ríkisstofnanir.

Sjá einnig upplýsingar á vef Ríkiskaupa, rikiskaup.is.

Vistvæn innkaup

Í mars 2009 samþykkti ríkisstjórnin stefnu um vistvæn innkaup ríkisins en í henni er sagt fyrir um hvernig samþætta á umhverfissjónarmið góðum innkaupaháttum við innkaup hjá ríkinu.

Sjá nánar á vefnum vinn.is.



Tungumál


Flýtival