Ráðuneytin
Stjórnarráð Íslands - ráðuneytin
Ráðuneyti Stjórnarráðsins starfa samkvæmt lögum um Stjórnarráð Íslands 2011 nr. 115 og samkvæmt forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands frá 28. september 2011. Ráðuneytin eru tíu samkvæmt forsetaúrskurði frá 28. september 2011, það eru:
- Forsætisráðuneytið
- Efnahags- og viðskiptaráðuneytið
- Fjármálaráðuneytið
- Iðnaðarráðuneytið
- Innanríkisráðuneytið
- Mennta- og menningarmálaráðuneytið
- Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
- Umhverfisráðuneytið
- Utanríkisráðuneytið
- Velferðarráðuneytið
Á vefjum ráðuneytanna eru upplýsingar um þau og verkefni þeirra
Vefir ráðuneytanna eru allir byggðir upp með svipuðum hætti. Fyrir utan forsíðuna skiptast vefirnir í fimm yfirflokka.
- Ráðuneytið: Upplýsingar um starfssvið og skipulag ráðuneytis, afgreiðslu , nöfn og netföng starfsfólks, stofnanir, fjármál, laus störf og fleira.
- Ráðherra: Upplýsingar um ráðherra, ræður og greinar ráðherra og um fyrri ráðherra.
- Verkefni: Upplýsingar um helstu málaflokka sem eru á starfssviði ráðuneytis og efni tengt þeim, yfirlit yfir nefndir og stofnanir sem heyra undir ráðuneyti, um alþjóðlegt samstarf og fleira.
- Útgáfa: Fréttasafn, skýrslur, auglýsingar, greinargerðir, vefrit og fleira.
- Lög og reglugerðir: Lög og reglugerðir sem falla undir viðkomandi ráðuneyti.
Ráðuneytin halda einnig úti vefjum um einstök verkefni, í tengslum við nefndir, vegna átaksverkefna og annars sem fellur undir verksvið Stjórnarráðsins.
