Ríkisstjórnatal frá stofnun lýðveldis
Þriðja ráðuneyti Ólafs Thors
Þriðja ráðuneyti Ólafs Thors: 6. desember 1949 - 14. mars 1950.
Talið frá vinstri: Jóhann Þ. Jósefsson, Björn Ólafsson, Ólafur Thors, Sveinn Björnsson forseti Íslands, Bjarni Benediktsson, Jón Pálmason.
- Ólafur Thors, forsætisráðherra og félagsmálaráðherra
- Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra, dómsmálaráðherra og menntamálaráðherra
- Björn Ólafsson, fjármálaráðherra og viðskiptaráðherra
- Jóhann Þ. Jósefsson, atvinnumálaráðherra
- Jón Pálmason, landbúnaðarráðherra
