Annað ráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur
Annað ráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur tók til starfa 10. maí 2009.
- Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
- Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra til 31. desember 2011, efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra frá 31. desember 2011 til 1. september 2012, atvinnu- og nýsköpunarráðherra frá 1. september 2012
- Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra
- Kristján L. Möller samgönguráðherra til 2. september 2010 (heiti ráðuneytisins breyttist 1. október 2009 í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti og var Kristján því samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra eftir það)
- Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra til 1. október 2009, dómsmála- og mannréttindaráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra frá 2. september 2010 (ráðuneytin sameinuðust 1. janúar 2011 undir innanríkisráðuneyti og var Ögmundur innanríkisráðherra eftir það)
- Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra (heiti ráðuneytisins breyttist 1. október 2009 í mennta- og menningarmálaráðuneyti og var Katrín mennta- og menningarmálaráðherra eftir það)
- Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra til 2. september 2010 (heiti ráðuneytisins breyttist 1. október 2009 í efnahags- og viðskiptaráðuneyti og var Gylfi efnahags- og viðskiptaráðherra eftir það)
- Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra til 2. september 2010 (heiti ráðuneytisins breyttist 1. október 2009 í dómsmála- og mannréttindaráðuneyti og var Ragna dómsmála- og mannréttindaráðherra eftir það)
- Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til 31. desember 2011
- Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra til 1. september 2012, fjármála- og efnahagsráðherra frá 1. október 2012
- Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra til 2. september 2010, efnahags- og viðskiptaráðherra frá 2. september 2010 til 31. desember 2011
- Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra til 1. september 2012, umhverfis- og auðlindaráðherra frá 1. september 2012
- Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra frá 1. október 2009 til 2. september 2010
- Guðbjartur Hannesson félags- og tryggingamálaráðherra og heilbrigðisráðherra frá 2. september 2010 (ráðuneytin sameinuðust 1. janúar 2011 undir velferðarráðuneyti og var Guðbjartur velferðarráðherra eftir það)
- Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra frá 31. desember 2011 til 1. september 2012, fjármála- og efnahagsráðherra frá 1. september 2012 til 1. október
Ríkisráðsfundur 10. maí 2009. Talið frá vinstri: Árni Páll Árnason, Jón Bjarnason, Gylfi Magnússon, Ögmundur Jónasson, Össur Skarphéðinsson, Jóhanna Sigurðardóttir, forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson, Steingrímur J. Sigfússon, Kristján L. Möller, Katrín Jakobsdóttir, Ragna Árnadóttir, Katrín Júlíusdóttir, Svandís Svavarsdóttir og Ragnhildur Arnljótsdóttir ríkisráðsritari.

Með breytingum 1. október 2009. Talið frá vinstri: Svandís Svavarsdóttir, Katrín Júlíusdóttir, Ragna Árnadóttir, Katrín Jakobsdóttir, Össur Skarphéðinsson, Jóhanna Sigurðardóttir, forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson, Steingrímur J. Sigfússon, Kristján L. Möller, Gylfi Magnússon, Jón Bjarnason, Árni Páll Árnason, Álfheiður Ingadóttir og Ragnhildur Arnljótsdóttir ríkisráðsritari.

Með breytingum 2. september 2010. Talið frá vinstri: Ögmundur Jónasson, Árni Páll Árnason, Jón Bjarnason, Össur Skarphéðinsson, Jóhanna Sigurðardóttir, forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson, Steingrímur J. Sigfússon, Katrín Jakobsdóttir, Katrín Júlíusdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Guðbjartur Hannesson og Ragnhildur Arnljótsdóttir ríkisráðsritari.

Með breytingum 31. desember 2011. Talið frá vinstri: Oddný G. Harðardóttir, Ögmundur Jónasson, Katrín Júlíusdóttir, Össur Skarphéðinsson, Jóhanna Sigurðardóttir, forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson, Steingrímur J. Sigfússon, Katrín Jakobsdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Guðbjartur Hannesson og Ragnhildur Arnljótsdóttir ríkisráðsritari.

Með breytingum 30. ágúst 2012. Talið frá vinstri: Guðbjartur Hannesson, Svandís Svavarsdóttir, Össur Skarphéðinsson, Jóhanna Sigurðardóttir, forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson, Steingrímur J. Sigfússon, Katrín Jakobsdóttir, Ögmundur Jónasson, Oddný G. Harðardóttir og Ragnhildur Arnljótsdóttir ríkisráðsritari.

Með breytingum 1. október 2012. Talið frá vinstri: Ögmundur Jónasson, Svandís Svavarsdóttir, Össur Skarphéðinsson, Jóhanna Sigurðardóttir, forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson, Steingrímur J. Sigfússon, Katrín Jakobsdóttir, Katrín Júlíusdóttir, Guðbjartur Hannesson og Ragnhildur Arnljótsdóttir ríkisráðsritari.
