Ríkisstjórnatal frá stofnun lýðveldis
Ráðuneyti Björns Þórðarsonar
Ráðuneyti Björns Þórðarsonar: 16. desember 1942 - 21. október 1944.
Talið frá vinstri: Björn Ólafsson, Björn Þórðarson, Sveinn Björnsson, Vilhjálmur Þór, Einar Arnórsson, Jóhann Sæmundsson vantar á myndina.
- Björn Þórðarson, forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra og kirkjumálaráðherra og (frá 19.04.1943) félagsmálaráðherra og (frá 21.09.1944) dómsmálaráðherra og menntamálaráðherra
- Vilhjálmur Þór, utanríkisráðherra og atvinnumálaráðherra
- Björn Ólafsson, fjármálaráðherra
- Einar Arnórsson, (til 21.09.1944) dómsmálaráðherra og menntamálaráðherra
- Jóhann Sæmundsson, (frá 22.12.1942 til 19.04.1943) félagsmálaráðherra
- Þessi utanflokkastjórn var við völd við lýðveldistökuna 17.06.1944, og var í daglegu tali kölluð "Coca Cola"-stjórnin, en í henni voru eigendur verksmiðjunnar, Vilhjálmur Þór og Björn Ólafsson.
