Ríkisstjórnatal frá stofnun lýðveldis
Annað ráðuneyti Davíðs Oddssonar
Annað ráðuneyti Davíðs Oddssonar: 23. apríl 1995 - 28. maí 1999.
Talið frá vinstri: Páll Pétursson, Halldór Blöndal, Friðrik Sophusson, Björn Bjarnason, Davíð Oddsson, Vigdís Finnbogadóttir forseti Íslands, Halldór Ásgrímsson, Finnur Ingólfsson, Guðmundur Bjarnason, Ingibjörg Pálmadóttir, Þorsteinn Pálsson, Ólafur Davíðsson ríkisráðsritari
- Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar 1995
- Stefnuræða Davíðs Oddssonar forsætisráðherra á Alþingi 1. október 1998
- Stefnuræða Davíðs Oddssonar forsætisráðherra á Alþingi 2. október 1997
- Stefnuræða Davíðs Oddssonar forsætisráðherra á Alþingi 2. október 1996
- Stefnuræða Davíðs Oddssonar forsætisráðherra á Alþingi 4. október 1995
- Davíð Oddson, forsætisráðherra og ráðherra Hagstofu Íslands. Fór jafnframt með dóms- og kirkjumálaráðuneytið og sjávarútvegsráðuneytið frá 11.05 til 28.05.1999
- Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra og samstarfsráðherra Norðurlandanna. Fór jafnframt með landbúnaðarráðuneytið og umhverfisráðuneytið frá 11.05. til 28. maí 1999.
- Björn Bjarnason, menntamálaráðherra
- Finnur Ingólfsson, iðnaðarráðherra og viðskiptaráðherra
- Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra til 16.04.1998
- Geir H. Haarde fjármálaráðherra 16.04.1998
- Guðmundur Bjarnason, umhverfisráðherra og landbúnaðarráðherra (til 11.05.1999)
- Halldór Blöndal, samgönguráðherra
- Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra
- Páll Pétursson, félagsmálaráðherra
- Þorsteinn Pálsson, dóms- og kirkjumálaráðherra og sjávarútvegsráðherra (til 11.05.1999).

Með breytingum 11. maí 1999. Talið frá vinstri: Ingibjörg Pálmadóttir, Geir H. Haarde, Björn Bjarnason, Davíð Oddson, Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, Halldór Ásgrímsson, Finnur Ingólfsson, Halldór Blöndal, Ólafur Davíðsson ríkisráðsritari, Páll Pétursson.
