Ríkisstjórnatal frá stofnun lýðveldis
Þriðja ráðuneyti Steingríms Hermannssonar
Þriðja ráðuneyti Steingríms Hermannssonar: 10. september 1989 - 30. apríl 1991
Talið frá vinstri: Svavar Gestsson, Óli Þ. Guðbjartsson, Júlíus Sólnes, Jóhanna Sigurðardóttir, Guðmundur Bjarnason, Vigdís Finnbogadóttir forseti Íslands, Jón Baldvin Hannibalsson, Halldór Ásgrímsson, Jón Sigurðsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Steingrímur J. Sigfússon.
- Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra og (frá 23.02.1990) ráðherra Hagstofu Íslands
- Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra
- Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra og viðskiptaráðherra
- Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra
- Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra
- Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra
- Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra
- Svavar Gestsson, menntamálaráðherra
- Steingrímur J. Sigfússon, samgönguráðherra og landbúnaðarráðherra
- Júlíus Sólnes, umhverfisráðherra, samstarfsráðherra Norðurlandanna og (til 23.02.1990) ráðherra Hagstofu Íslands
- Óli Þ. Guðbjartsson, dóms- og kirkjumálaráðherra
