Fyrsta ráðuneyti Steingríms Hermannssonar
Fyrsta ráðuneyti Steingríms Hermannssonar: 26. maí 1983 - 8. júlí 1987.
Talið frá vinstri: Albert Guðmundsson, Halldór Ásgrímsson, Jón Helgason, Alexander Stefánsson, Steingrímur Hermannsson, Vigdís Finnbogadóttir forseti Íslands, Geir Hallgrímsson, Þorsteinn Pálsson, Matthías Bjarnason, Guðmundur Benediktsson ríkisráðsritari, Ragnhildur Helgadóttir og Sverrir Hermannsson. Á myndina vantar Matthías Á. Mathiesen.
- Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra
- Geir Hallgrímsson, (til 24.01.1986) utanríkisráðherra
- Albert Guðmundsson, (til 16.10.1985) fjármálaráðherra og (frá 16.10.1985 til 24.03.1987) iðnaðarráðherra
- Alexander Stefánsson, félagsmálaráðherra
- Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra og (frá 16.10.1985) samstarfsráðherra Norðurlandanna
- Jón Helgason, landbúnaðarráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra
- Matthías Bjarnason, samgönguráðherra og (til 16.10.1985) heilbrigðisráðherra og (frá 16.10.1985) viðskiptaráðherra
- Matthías Á. Mathiesen, (til 16.10.1985) viðskiptaráðherra, ráðherra Hagstofu Íslands og samstarfsráðherra Norðurlandanna og (frá 24.01.1986) utanríkisráðherra
- Ragnhildur Helgadóttir, (til 16.10.1985) menntamálaráðherra og (frá 16.10.1985) heilbrigðisráðherra
- Sverrir Hermannsson, (til 16.10.1985) iðnaðarráðherra og (frá 16.10.1985) menntamálaráðherra
- Þorsteinn Pálsson, frá 16.10.1985) fjármálaráðherra og ráðherra Hagstofu Íslands og (frá 24.03.1987) iðnaðarráðherra

Með breytingum 24. janúar 1986. Talið frá vinstri: Albert Guðmundsson, Halldór Ásgrímsson, Jón Helgason, Alexander Stefánsson, Steingrímur Hermannsson, Vigdís Finnbogadóttir forseti Íslands, Matthías Á. Mathiesen, Þorsteinn Pálsson, Matthías Bjarnason, Ragnhildur Helgadóttir, Guðmundur Benediktsson ríkisráðsritari, Sverrir Hermannsson.
