Ríkisstjórnatal frá stofnun lýðveldis
Ráðuneyti Gunnars Thoroddsens
Ráðuneyti Gunnars Thoroddsens: 8. febrúar 1980 - 26. maí 1983.
Talið frá vinstri: Pálmi Jónsson, Friðjón Þórðarson, Tómas Árnason, Steingrímur Hermannsson, Gunnar Thoroddsen, Kristján Eldjárn forseti Íslands, Ólafur Jóhannesson, Ragnar Arnalds, Guðmundur Benediktsson ríkisráðsritari, Svavar Gestsson, Hjörleifur Guttormsson, Ingvar Gíslason.
- Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra og ráðherra Hagstofu Ísl.
- Ólafur Jóhannesson, utanríkisráðherra
- Friðjón Þórðarson, dóms- og kirkjumálaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlandanna
- Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra
- Ingvar Gíslason, menntamálaráðherra
- Pálmi Jónsson, landbúnaðarráðherra
- Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra
- Steingrímur Hermannsson, sjávarútvegsráðherra og samgönguráðherra
- Svavar Gestsson, heilbrigðisráðherra og félagsmálaráðherra
- Tómas Árnason, viðskiptaráðherra
