Ráðuneyti Bjarna Benediktssonar
Ráðuneyti Bjarna Benediktssonar: 14. nóvember 1963 - 10. júlí 1970.
Talið frá vinstri: Jóhann Hafstein, Gunnar Thoroddsen, Bjarni Benediktsson, Birgir Thorlacius ríkisráðsritari, Ásgeir Ásgeirsson forseti Íslands, Guðmundur Í. Guðmundsson, Emil Jónsson, Gylfi Þ.Gíslason, Ingólfur Jónsson.
- Bjarni Benediktsson, (lést 10.07.1970) forsætisráðherra
- Guðmundur Í. Guðmundsson, (til 31.08.1965) utanríkisráðherra
- Emil Jónsson, (til 31.08.1965) sjávarútvegsráðherra og (frá 1.1 1970) félagsmálaráðherra og (frá 31.08.1965) utanríkisráðherra
- Gunnar Thoroddsen, (til 08.05.1965) fjármálaráðherra
- Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráðherra og viðskiptaráðherra
- Ingólfur Jónsson, samgönguráðherra
- Jóhann Hafstein, dóms- og kirkjumálaráðherra, iðnaðarráðherra, fór einnig með heilbrigðismál til 1.1. 1970.
- Magnús Jónsson, (frá 08.05.1965) fjármálaráðherra og (frá 1.1. 1970) ráðherra Hagstofu Íslands
- Eggert G. Þorsteinsson, sjávarútvegsráðherra, (frá 31.08.1965 - 31.12 1969) félagsmálaráðherra og (frá 1.01.1970) heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra
Bjarni Benediktsson fórst í húsbruna að Þingvöllum aðfararnótt 10. júlí 1970 ásamt konu sinni og dóttursyni. Tók Jóhann Hafstein þá við forsæti í ríkisstjórn.
Með breytingum 31. ágúst 1965. Talið frá vinstri: Magnús Jónsson, Ingólfur Jónsson, Jóhann Hafstein, Bjarni Benediktsson, Guðmundur Benediktsson ríkisráðsritari, Ásgeir Bjarnason forseti Sameinaðs Alþingis, Þórður Eyjólfsson forseti Hæstaréttar, Emil Jónsson, Gylfi Þ. Gíslason, Eggert G. Þorsteinsson
