Ríkisstjórnatal frá stofnun lýðveldis
Fimmta ráðuneyti Ólafs Thors
Fimmta ráðuneyti Ólafs Thors: 20. nóvember 1959 - 14. nóvember 1963.
Talið frá vinstri: Gunnar Thoroddsen, Ingólfur Jónsson, Bjarni Benediktsson, Ólafur Thors, Birgir Thorlacius ríkisráðsritari, Ásgeir Ásgeirsson forseti Íslands, Guðmundur Í. Guðmundsson, Emil Jónsson, Gylfi Þ. Gíslason.
- Ólafur Thors, (til 14.09.1961 og frá 1.1.1962) forsætisráðherra
- Guðmundur Í. Guðmundsson, utanríkisráðherra
- Bjarni Benediktsson, (til 14.09.1961 og frá 1.1.1962) dóms- og kirkju, heilbrigðis- og iðnaðarmálaráðherra og (frá 14.09.1961 til 31.12.1961) forsætisráðherra
- Emil Jónsson, sjávarútvegsráðherra og félagsmálaráðherra
- Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra
- Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráðherra og viðskiptaráðherra
- Ingólfur Jónsson, landbúnaðarráðherra og samgönguráðherra
- Jóhann Hafstein (frá 14.09.1961 til 31.12.1961) dóms- og kirkju, heilbrigðis- og iðnaðarmálaráðherra
Þessi tveggja flokka ríkisstjórn var löngum nefnd „Viðreisnarstjórn“, og kjörtímabilið og tvö þau næstu þar á eftir „Viðreisnartímabil“.
